Reykjaneshöllin
Nú er um mánuður síðan við tókum við Reykjaneshöllinni, glæsilegu íþróttahöllinni okkar. Allir sem rætt hafa við undirritaðann og komið hafa í húsið, bæði leikmenn og áhorfendur, hafa lofað hversu glæsilegt það er í alla staði. Leikmenn hafa lofað hversu gott er að leika knattspyrnu í húsinu. Þá þykir húsið falla mjög vel að umhverfi sínu. Húsið er 12,5 metrar á hæðina að innanmáli, þar sem það er hæst, en 5,5 metrar mælt við hliðarlínu upp í sperru. Í húsinu er ávallt hægt að halda 15 stiga hita, þar sem þakið í húsinu er sérstaklega vel einangrað miðað við íslenskar aðstæður. Loftræsikerfið er stærra, vandaðra og dýrara en í sambærilegum húsum erlendis. Stæði eru meðfram vellinum fyrir um 1000 manns. Tjald skiptir húsinu í miðju og þannig fást tveir sjálfstæðir vellir. Gervigras er af dýrustu og bestu gerð.Þjónustubygging er 250 fm. hvor hæð. Búningsaðstaða er á neðri hæð og aðstaða fyrir dómara og veitinga - og fundaraðstaða er efri hæðinni. Þjónustubyggingin er klædd að utnaverðu með jatoba brasilískum harðviði. Eftir er að ganga frá 150 bílastæðum fyrir framan húsið, þar af 50 malbikuðum stæðum og 180 malarstæði eiga að koma aftan við húsið að vestanverðu. Þetta verður gert í vor og er innifalið í byggingarkostnaðinum.Umsamið verð á húsinu er 371 milljón króna og miðar samningur okkar við það að við greiðum 28 milljónir króna í 35 ár, auk þess höfum við leiguréttindi til 15 ára í viðbót. Verkafl hf., eigandi hússins, getur ekki selt eða leigt öðrum húsið en Reykjanesbæ. Verkafl hf. sér um allt viðhald að utan fyrstu 5 árin. Við töldum það mjög mikilvægt vegna slæmrar reynslu af lekavandamálum í stórum byggingum á Íslandi, sem eiga að teljast fullbúnar. Starfsmenn Verkafls hf. hafa eigi að síður lagt sig fram um að vanda alla smíði og frágang við húsið. Undirritaður var formaður dóm- og úttektarnefndar á byggingu hússins og hefur því haft góða aðstöðu til þess að fylgjast með byggingu þess frá upphafi. Það skal fullyrt hér að hefði Reykjanesbær byggt húsið, eins og tíðkast hefur með önnur skóla - og íþróttamannvirki, þá hefði þessi bygging ekki kostað undir 470 til 500 milljónum króna. Þá hefði bærinn þurft að sjá um allt viðhald utanhúss strax. Þakið er 8350 fermetrar. Allt tal minnihlutans um að samningur um þetta mannvirki hafi verið óhagstæður er fjarstæða. Minnihlutinn hefur haldið því fram að útleiga á húsinu sé of lág. Því er til að svara að núgildandi útleiguverðið er hugsað sem sérstakt kynningarverð til vorsins til þess að kynna húsið og bæjarfélagið. Tímatafla hússins og útleiguverð verður síðan endurskoðað í vor. Það gæti allt eins farið svo að útleiguverðið verði breytilegt eftir tímabilum. Það munu fást töluverðar tekjur af útleigu á íþróttahúsinu, til þess að borga niður reksturinn.Meirihluti Reykjanesbæjar þorði að fara ótroðnar slóðir í því að koma upp hina ódýra en glæsilega íþróttahúsi, sem Reykjaneshöllin er. Önnur sveitarfélög líta nú mjög til þess, sem við höfum gert og eru nú að skoða kosti þess að fara sömu leið. Enda er þessi leið að mínu mati sú raunhæfasta til þess að skapa æskufólkinu okkar góða aðstöðu til íþróttaiðkana. Þessi leið er því mikilvægur liður í forvarnarstarfi bæjarfélagsins gegn óreglu og eiturlyfjum og uppbyggingu æskulýðsstarfs.Þorsteinn Erlingsson,bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.