Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Námskeið um Reykjanesskagann
Þriðjudagur 16. september 2003 kl. 11:58

Námskeið um Reykjanesskagann

Á vordögum fékk Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum styrk frá Starfsmenntaráði til að standa fyrir námskeiði um Reykjanesskagann. Markmiðið var að efla vitund starfsfólks í ferðaþjónustu á Reykjanesi um þá möguleika sem Reykjanesskaginn hefur upp á að bjóða fyrir ferðamenn og náttúruunnendur.

Fyrirtækjum á Suðurnesjum var boðið að taka þátt í þessu námskeiði gegn vægu þátttökugjaldi. Þátttaka var góð og hópurinn frábær. Námskeiðið stóð yfir í fjóra daga og byggðist upp á ferðum með leiðsögn á áhugaverða staði ásamt 3 tíma námskeiði um sölutækni.

Ferðirnar

Fyrsta daginn var farið út á Reykjanes með leiðsögumanninum Helgu Ingimundardóttur. Þó svo flestir ef ekki allir hefðu margoft komið á þessar slóðir lærðu þátttakendur margt og sáu nýja staði sem þeir höfðu ekki séð áður s.s. sundlaugina sem Grindvíkingar notuðu á árum áður til að læra að synda. Í Grindavík var m.a.farið í Saltfisksetrið og þaðan að Bláa lóninu þar sem uppbygging lónsins var skoðuð og fræðst um framtíðaráætlanir. Í ferðinni lærðu þátttakendur um sérstæða jarðfræði Reykjanesskagans. Hópurinn endaði í Go-kart keppni þar sem keppnisskap þátttakenda kom í ljós.

Á öðrum degi var Íslendingur skoðaður og sagði Gunnar Marel frá smíði skipsins og siglingu þess til Ameríku. Síðan var farið í hvalaskoðun með Moby Dick þar sem höfrungar sýndu listir sínar við fögnuð viðstaddra. Að sjóferð lokinni var farið í Byggðasafn Reykjanesbæjar þar sem Sigrún Ásta Jónsdóttir forstöðukona tók á móti hópnum og fræddi viðstadda um byggðasögu Suðurnesja. Þaðan var haldið út í Garð með Halldóru Ingibjörnsdóttur sem leiðsögumann og var Byggðasafn Gerðahrepps skoðað. Frá Garði var haldið til Sandgerðis þar sem Reynir Sveinssson á Fræðasetrinu tók við leiðsögninni. Hann fór m.a. með hópinn í Hvalsneskirkju þar sem skemmtilegar sögur af Hallgrími Péturssyni voru sagðar.

Á síðasta degi námskeiðsins var farið út á Stafnes og gengið út að Básendum með leiðsögn Reynis Sveinssonar. Þar virtu viðstaddir fyrir sér svæðið sem varð fyrir flóði 1799, sem varð til þess að verslun lagðist af. Frá Básendum var haldið til Reykjanesbæjar þar sem m.a. Keflavíkurborg var skoðuð og aðrir áhugaverðir staðir. Síðan var haldið til Voga og á Vatnsleysuströnd og m.a. farið í Kálfatjarnarkirkju en þar tók Helgi? á móti hópnum og fræddi viðstadda um sögu kirkjunnar.

Námskeið í sölutækni

Þátttakendur sátu námskeið í sölutækni í hinu fallega umhverfi Eldborgar. Gísli Blöndal markaðs- og þjónusturáðgjafi hélt athygli þátttakenda í 3 klst. með líflegu og góðu námskeiði. Þátttakndur urðu enn betur meðvitaðir um gildi góðrar þjónustu og sölumennsku og lærðu hagnýtar og öflugar aðferðir sér til aðstoðar.

Árangur

Þátttakendur voru sammála um að námskeiðið hefði opnað augu þeirra enn betur fyrir þeirri náttúrperlu sem Reykjanesið er. Á námskeiðinu lærðu þeir stuttar sögur um svæðið, kynntust nýjum stöðum og urðu þar með hæfari til að upplýsa ferðamenn um Reykjanesið. Síðast en ekki síst kynntust aðilar sem eru að starfa í ólíkum greinum innan ferðaþjónustunnar og myndaðist þar með grundvöllur til frekari samvinnu sem mun gagnast þeim í starfi.  Besta vopnið í aukinni samkeppni um ferðamanninn er samvinna á milli aðila á svæðinu.

Annað námskeið

Til stendur að halda annað námskeið sem mun byrja 24. september. Starfsmenn í ferðaþjónustu eru hvattir til að mæta og fræðast um allt það sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða. Námskeiðið gagnast öllum þeim sem hafa samskipti við ferðamenn s.s. starfsfólk á bílaleigum, gististöðum, veitingastöðum, bensínstöðvum, hótelum, gistiheimilum o.fl. Þeim sem hafa áhuga á þátttöku er bent á að hafa samband við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024