Lykillinn að góðum námsárangri
Pistill Gylfa Guðmundssonar skólastjóra Njarðvíkurskóla: Niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk hafa nú verið send út og í framhaldi af því koma umræður um niðurstöður prófanna, um gæði skóla og skilvirkni þeirra og hvernig má bæta árangur skólanna.
Í síðustu grein minni bar ég saman íþróttir og nám barna. Foreldrar leggja oft gríðarlega áherslu á að barnið nái árangri í íþróttum, hvetja börnin til árangurs. En þegar kemur að námsbókinni fer oft lítið fyrir hvatningunni. Hvað þarf til?
Ég er ekki að kenna foreldrum um ef illa gengur en ég er að vekja athygli á þessum þætti foreldris sem er svo mikilvægur. Ég vil nefna hér nokkra almenna þætti sem eru mikilvægir svo árangur náist í skóla:
1. Foreldrar þurfa að sýna jákvæðan áhuga á námi og starfi barns síns.
2. Nemendur þurfa að sýna áhuga á náminu og leggja rækt við það
3. Kennarar þurfa að miða kennslu sína við að ná því besta fram hjá hverjum nemanda.
4. Sveitarfélög þurfa að vera jákvæð gagnvart skólastarfi og það er höfuðskylda þeirra að skapa skilyrði
innan skólanna svo starfsfólk og nemendur búi við góð skilyrði í skólunum, tækjakostur þarf að vera góður
5. Fjölga þarf réttindakennurum í skólum bæjarins.
Fræðimaðurinn James Coleman o.fl. gerðu rannsókn á skilvirkni skóla. Í rannsókn Colman´s kom í ljós að mismunur á námsgengi nemenda var fyrst og fremst tengdur félaglegum bakgrunni þeirra, ekki síst hvernig foreldrar standa sig gagnvart börnum sínum.
Gefðu þér tíma með barninu
Til eru foreldrar sem gefa sér sjaldan tíma fyrir börnin sín þegar að námi kemur. Þau fá ekki þá aðstoð sem þau þurfa.Við verðum að gera okkur grein fyrir að það er mikil ábyrgð að eignast barn. Um leið og það gerist erum við að taka á okkur skyldur. Okkur foreldrum er skylt að kenna börnum okkar mannasiði og framkomu. Það er hluti af uppeldisskyldu foreldra.
Skólinn á ekki að þurfa að kenna börnum almenna mannasiði þegar þau koma í skólann. Því miður þurfa kennarar oft að gera þetta. Við fáum stundum börn í skólann sem eru algjörlega óöguð. Þessi börn eyðileggja oft kennslustundir fyrir þeim sem vilja læra.
Foreldrar þurfa einnig að fylgjast afar vel með námi barna alveg frá leikskólaaldri. Stundum fáum við börn í skóla sem fá engan stuðning eða athygli vegna náms heima fyrir. Þau byrja að dragast aftur úr frá fyrsta degi vegna þess að það er enginn heima sem hugsar um að aðstoða þau við heimanám og fylgja því eftir. Það er enginn sem hugsar um að hjálpa þeim að raða í töskurnar þeirra. Námið verður auðvitað lítið sem ekkert og þessi börn eiga litla möguleika og dragast aftur úr hvern einasta dag allan sinn skólatíma.
Sem betur fer er þetta fámennur hópur barna. Flestir fá aðstoð heima við upphaf skóla. Það þarf hins vegar að fylgja því eftir í gegnum allan skólann. Ég hef löngum sagt að foreldrar og forráðamenn nemenda séu lykillinn að góðum árangri barna og unglinga í skóla. Þar er grunnurinn lagður.
Hvað er skilvirkur skóli?
Samkvæmt skilgreiningu orðsins er það skóli sem skilar góðu starfi, góðum árangri. Það kann hins vegar vel að vera að við séum ekki öll sammála um hvað átt er við.
Skóli sem skilar góðum niðurstöðum á samræmdum prófum er skilvirkur hvað þann þátt varðar. En skilvirkur skóli þarf ekki endilega að vera góður skóli. Það er ekki sanngjarnt að meta skilvirkni skóla eingöngu út frá niðurstöðum samræmdra prófa eins og margur gerir. Það er óeðlilegt. Það þarf að skoða marga aðra hluti sem hafa áhrif á niðurstöður prófa. Því miður horfa margir fyrst og fremst á niðurstöður samræmdra prófa er þeir meta skilvirkni skóla en það hefur orðið til þess að prófin eru farin að stýra innra starfi skólanna æ meir. Ég trúi því að skilvirkur skóli sé sá skóli þar sem starfsfólki og börnum líður vel. Það er skóli sem börnin vilja vera í.
Ekkert hvetur barn meira til að ná árangri en viðurkenning og áhugi allra sem að því koma og auðvitað
viljum við öll ná árangri á prófum á landsvísu. Það á við um okkur öll!
Samvinna allra aðila er afar mikilvæg til að svo megi verða. Samvinnu við heimilin verður að
auka og bæta með markvissu starfi.
Við stundum mannrækt í uppeldisstofnunum okkar, skólum og leikskólum, gleymum því ekki!
Góður skóli þarf að leggja áherslu á þessi atriði m.a.:
· Skólinn þarf að hafa markvisst skipulag
· Markmið séu skýr
· Finna sterkar hliðar nemenda og vinna með þær
· Allir starfsmenn skóla þurfa að leggjast á eitt sem einn maður, hafi sameiginlega stefnu og sömu reglu í starfi
· Gott samstarf og traust milli kennara
· Jákvætt starfsfólk með jákvæða sýn. Í skólanum á að vera góður skólaandi, stöðugleiki og festa.
· Kennsluaðferðir þurfa að vera fjölbreyttar og í stöðugri endurskoðun
· Nemendur eiga að vera virkir þátttakendur í námi en ekki þiggjendur
· Skólareglur eiga að vera í samræmi við reglur samfélagsins með áherslu á stundvísi, vinnusemi og virðingu fyrir öðru fólki
Ráð handa foreldrum
Áslaug Brynjólfsdóttir fyrrv. skólastjóri og námsstjóri skrifaði árið 1998 um samstarf heimilis og skóla. Þar gefur hún foreldrum ráð og bendir á eftirfarandi þætti sem sé mikilvægt fyrir foreldra að hafa í huga:
1. Spyrja sig: Hvernig get ég best tekið þátt í menntun barnsins míns? 2. Lesa fyrir börn, hafa margskonar lestrarefni á boðstólum handa þeim og fara með þau á bókasafn. 3. Hvetja barnið til að sækja skólann og brýna fyrir því að fjarvistir séu óheimilar. 4. Hafa stjórn á því hvenær og hve lengi barnið horfir á sjónvarp. 5. Sjá til þess að barnið hafi frið til að sinna heimaverkefnum sínum og veita því hjálp við heimavinnuna eða líta eftir að hún sé unnin daglega.6. Örva börn til þátttöku í ýmiss konar tómstunda- og fræðandi störfum í lengri skólafríum. 7. Hvetja börnin til að leggja að sér við námið. 8. Hjálpa nemendum til að velja viðeigandi námsgreinar, þegar slíkt er í boði. 9. Foreldrar missi ekki áhugann á foreldrasamstarfi þótt börnin séu komin á unglingastigið. 10. Vera ætíð í góðu og jákvæðu sambandi við kennara barnsins. 11. Vera tilbúin til að taka þátt í sjálfboðastarfi í skólanum sé eftir því leitað. 12. Taka þátt í tilraunum sem lúta að bættu skólastarfi og taka þátt í ýmsum nefndarstörfum, sem verða til þess að bæta og endurskipuleggja skólastarfið.
3. febrúar 2003
Gylfi Guðmundsson
Pistlar Gylfa birtast á vef Njarðvíkurskóla, www.njardvikurskoli.is