Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Landsstjórinn segir nei
Fimmtudagur 25. janúar 2007 kl. 13:29

Landsstjórinn segir nei

Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir í Morgunblaðinu 13. janúar að ekki verði kosið um stóriðjuáform á Suðurnesjum.  Framkvæmdirnar sem bæjarstjórinn vill ekki að kosið verði um eru að megninu til í landi Garð, Sandgerðis, Grindavíkur og Hafnarfjarðar en minnst af mannvirkjunum eru í því landi sem umboð bæjarstjórans í raun og veru nær til. Árni hefur aðeins umboð til þess að tala fyrir hönd Reykjanesbæjar. Eða er það svo að sveitarstjórnir hinna sveitafélagana láti Árna eftir að leika Landsjóra sameinaðra Suðurnesjamanna í landnámi Ingólfs og taka fyrir þær ákvarðanir er varðar lýðræðislega þátttöku íbúa sinna sveitarfélaga?

Aðdragandinn að útspili Árna er fundur Sólar á Suðurnesjum þann 12. janúar síðastliðinn. Tilgangur fundarins var að kynna fyrir Suðurnesjamönnum og öðrum Íslendingum umsvif yfirvorfandi stóriðjuframkvæmda með álveri í Helguvík og tilheyrandi virkjunum víðsvegar á Reykjanesskaganum. Að frátöldum íbúafundi sem sveitarstjórnin i Garði stóð fyrir hefur lítil sem engin kynning farið fram á meðal íbúa svæðisins en engu að síður er unnið að framvindu málsins af fullum krafti. Íbúar sem málið varðar hafa ekki fengið neinar haldgóðar upplýsingar um stöðu mála og áformin í heild sinni enda hafa allar umræður farið fram og allar ákvarðanir verið teknar fyrir luktum dyrum í bakherbergjum landsstjórans sjálfskipaða.

Markmið Sólar á Suðurnesjum eru þrjú: 1) Að varðveita náttúrufar og landslagsheildir Reykjanesskagans. 2) Að opna fyrir umræðu meðal almennings um áhrif álvers og orkumannvirkja á umhverfi og samfélag.  3) Að knýja fram kosningar um þessi stórfelldu áform sem varða öll sveitarfélögin á Reykjanesskaganum.

 Umhverfisraskið sem myndi fylgja álveri í Helguvík er gríðarlegt. Til stendur að mæta orkuþörfinni með nokkrum nýjum jarðvarmavirkjunum víðsvegar á Reykjanesskaganum í Krýsuvík, við Sandfell og á Trölladyngjusvæðinu. Háspennulínur myndu liggja eftir skaganum þvert og endilangt, hvílíkt augnayndi, og langþráður Ósabotnavegur yrði línuvegur ef áformin munu ná fram að ganga. Hafnfirðingar einir fá að kjósa um stækkun álversins i Straumsvík jafnvel þó virkjanir vegna þeirra framkvæmda séu í öðrum landshluta, og er réttur Suðurnesjamanna til kosninga  því augljós. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar er þó ekki þeirrar skoðunar enda finnst honum betra að lágmarka upplýsingaflæðið til þegna sinna. Það er gömul saga og ný að upplýsingar og upplýst umræða er jafnan óhagstæð framvindu mála og áformum þegar áformin eru í eðli sínu óréttlætanleg. Skyldu hinar sveitarstjórnirnar sem málið varðar vera hliðhollar vinnubröðgum einræðis og leyndar?

Elvar Geir Sævarsson
Talsmaður samtakanna Sól á Suðurnesjum




Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024