Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Miðvikudagur 7. apríl 2004 kl. 09:30

Breytingar boða tækifæri

Ég var boðaður á fund ásamt nokkrum þingmönnum annarra flokka með Heather A, Conley í bandaríska sendiráðinu á dögunum. Heather er háttsettur embættismaður hjá bandaríska ríkinu og ber titilinn “Debuty Assistant Secretary for Europian and Eurasian Affairs”. Umræðuefnið snerist aðallega um varnarsamninginn og önnur tengd mál.  Allir þingmenn fengu að spreyta sig á fundinum og láta í ljós skoðanir sínar á málefnum landanna. Hér á eftir kemur mitt innlegg til fundarins.

Varnarsáttmálin í uppnámi

“Það er skiljanlegt að varnarsáttmálinn sé í uppnámi. Kalda stríðið er að baki og frá því sem áður var, er tekið við harla ólíkt umhverfi í pólitískum skilningi á sviði alþjóðamála. Það sem stendur upp úr er hryðjuverkaógnin sem kallar á nýja taktík á sviði hernaðarmála um allan heim. Þetta skiljum við. Bandaríkjamenn verða áfram vinir íslensku þjóðarinnar en heilbrigt vinasamband getur aldrei verið án gagnrýni. Frjálslyndi flokkurinn var ákveðið á móti innrás Bandaríkjamanna í Írak.”

Slæmt atvinnuástand

“Öllum er ljóst að Bandaríkjamenn nutu mikils og vel af herstöðinni á tímum kalda stríðsins. Landfræðilega, var herstöðin Bandaríkjamönnum gífurlega mikilvæg. Saga þjóðanna kallar áfram á þá mikilvægu staðreynd að varnir landsins verði áfram tryggðar að því leyti sem nýtt pólitískt landslag í alþjóðamálum biður um. Það ríkir ógnarástand í atvinnumálum á Suðurnesjum og þar er helsti áhrifavaldurinn, uppsagnir á starfsfólki varnarliðsins og starfsfólki þjónustufyrirtækja sem starfað hafa í áranna rás fyrir varnarliðið.
  Um árabil hefur héraðið setið eftir í byggðarstefnu Íslendinga. Fyrst og fremst vegna veru varnarliðsins síðustu áratugina. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir efnahag héraðsins að fá aðgengi að húsakosti sem varnarliðið býr yfir á Keflavíkurflugvelli og hefur ekki í hyggju að nýta áfram sökum þeirra breytinga sem eru í nánd. T.a.m. eru hugmyndir íslenskra flugvirkja mjög áhugaverðar en til að ná þeirra markmiðum fram verður að koma til stuðningur og skilningur frá Bandaríkjamönnum.” 

Hvað er framundan ?

“Í fyrsta lagi verður íslensk þjóð að fá vitneskju um framvindu mála og fá á hreint hvaða húsakostur og búnaður stendur því til boða til frekari uppbyggingar á ýmis konar iðnaði í framtíðinni. Í annan stað er mjög mikilvægt að Bandaríkjamenn opni á viðskiptatækifæri. T.d. yrði viðhald á litlum hluta af flugvélakosti NATO Íslendingum mjög dýrmætt verkefni. Einnig er mikilvægt að dyr séu opnaðar til bæði Airbus og Boeing verksmiðjanna í Bandaríkjunum. Stuðningur af þessu tagi mun að miklu leyti milda annars sögulegan stirðleika sem kominn er á í samskiptum þjóðanna. Við verðum að horfa á breytingarnar sem samvinnuverkefni en ekki sem pólitískt þrætumál”.
  Þessi sjónarmið féllu í mjög góðan jarðveg hjá Heather A. Conley. Ég var beðinn um að hafa frekara samband eftir fundinn og mun ég sannarlega nýta það tækifæri.


Hver er hættan ?
 
Einu þjóðirnar sem “tæknilega” geta ráðist á okkur Íslendinga úr lofti eru Bretar, Bandaríkjamenn og Rússar. Aðrar þjóðir búa ekki yfir herþotum með langdrægni í aðra eins vitleysu. Við erum í NATO, því má að líkum leiða að þessar þjóðir sýni okkur ekkert annað en vinarhug. Við Íslendingar erum umvafðir vinaþjóðum. Ef fullmönnuð flugmóðurskip frá erlendum óvinaríkjum t.a.m. Norður Kóreu fara af stað er ljóst að NATO mun bregðast hratt við. Ég get með engu móti skilið þessa taugaveiklun hjá stjórnarliðum. Til hvers í ósköpunum eiga Bandaríkjamenn að vera hér með herþotur og þær óvopnaðar í þokkabót ? Það sem helst þarf að tryggja gagnvart varnarliðinu er að mínu mati tvennt. Í fyrsta lagi verður bæði þekking og kunnátta Bandaríkjamanna um hryðjuverkaógnir og varnir því samfara að heimfærast yfir til okkar með lágmarksvörnum sem talist geta trúverðugar.  Í öðru lagi ber að tryggja áframhaldandi veru þyrlusveita varnarliðsins en þær skapa ákveðið öryggi, þá helst fyrir sjófarendur á norðurslóðum.


Hugmynd frá Flugvirkjafélagi Íslands

Flugvirkjafélag Íslands telur yfir 400 félagsmenn, þeirra á meðal eru 104 atvinnulausir. Í ljósi mikilla breytinga hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli skapast óneitanlega ný tækifæri og nýjar hugmyndir. Ef flugvélaskýli nr. 885 á Keflavíkurflugvelli fæst úthlutað til nýrra verkefna mun boltinn fara að rúlla. Landfræðileg staða okkar tryggir næg verkefni. Allt að 200 manna vinnustaður gæti orðið raunin í skýli 885. Annar eins fjöldi starfa kæmi til sökum samlegðaráhrifa. Tryggja þarf flugvallarsvæðið sem tollfrjálst svæði (free trade) og áfram afgirt.  Ef þessar hugmyndir ná fram að ganga mun koma til flugvirkjaskóli í Reykjanesbæ í samvinnu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja.

Nýtt afl og frumkvæði

Það verður að koma til kraftur og samheldni frá sveitarfélögum á suðurnesjum. Flugvallarsvæðið er gullæð mikilla tækifæra. Að sama skapi getur svæðið orðið dýr baggi á samfélaginu ef hugmyndadeyfð og aðgerðarleysi verður áfram raunin. Því tel ég brýnt að sveitarfélög á suðurnesjum ásamt Flugvirkjafélagi Íslands gefi tóninn með því að ræða milliliðalaust við Bandaríkjamenn. Bandaríkjamenn geta afhent nýjum og öflugum félögum húsakost og búnað á Keflavíkurflugvelli. Okkur er ekkert annað að vanbúnaði. Nýr og öflugur iðnaður fyrir Íslendinga er handan við hornið.

Þakka þeim sem lásu.

Gunnar Örn Örlygsson
Þingmaður Frjálslynda flokksins
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024