Viðskipti

Transavia hefur flug til Keflavíkurflugvallar í sumar
Mánudagur 1. apríl 2019 kl. 16:29

Transavia hefur flug til Keflavíkurflugvallar í sumar

Transavia mun fljúga frá Schiphol til Keflavíkur þrisvar sinnum í viku frá 5. júlí næstkomandi og þannig fylla upp í það skarð sem varð til við brottfall WOW air fyrir helgi. Flogið verður á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og mun fjöldi ferða aukast til framtíðar. Með þessu er Transavia að bregðast við aukinni eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi í kjölfar gjaldþrots WOW air. Að sama skapi gefur þetta Transavia tækifæri til þess að útvíkka leiðakerfi sitt til norðurs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.
 
Ákvörðun um flug Transavia til Keflavíkurflugvallar er tekin með samstarfsaðilanum Voigt Trave. „Við sjáum þetta sem gott tækifæri fyrir báða aðila og er útvíkkun á okkar samstarfi. Að auki mun Transavia fljúga til Akureyrar í samstarfi við Voigt Travel frá og með 27. maí og er við því að gera Ísland enn aðgengilegri,“ segir Cees van den Bosch, framkvæmdastjóri Voigt Travel.
 
Transavia Netherlands er hollensk lággjaldaflugfélag og hluti af Air France KLM Group. Transavia er annað stærsta flugfélagið í Hollandi. Það flýgur til meira en 110 áfangastaða, aðallega í Evrópu og Norður-Afríku. Transavia flytur meira en 15 milljón farþega á ári.
 
Þegar ljóst var að WOW air myndi hætta starfsemi hafði Isavia samband við Transavia Netherlands sem höfðu áður sýnt Íslandi áhuga sem áfangastað. „Transavia brást skjótt við og lýsti fljótt yfir áhuga á því að hefja flug milli Keflavíkur og Amsterdam. Þetta eru virkilega ánægjuleg niðurstaða en Isavia mun áfram leita til flugfélaga um að hefja flug til landsins,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Isavia.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024