Viðskipti

Sætanýting WOW air 88% í september
Mánudagur 8. október 2018 kl. 11:16

Sætanýting WOW air 88% í september

Farþegum WOW air í september fjölgar um 27%

WOW air flutti 362 þúsund farþega til og frá land­inu í september eða um 27% fleiri farþega en í september árið 2017. Þá var sæta­nýt­ing WOW air 88% í september í ár en var 85% í fyrra. Sæta­nýt­ing­in jókst þrátt fyr­ir 26% aukn­ingu á fram­boðnum sætis­kíló­metr­um miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá hefur hlutfall tengifarþega aukist en í ár var hlutfallið 55% í september miðað við 47% á sama tíma í fyrra. Það sem af er ári þá hef­ur WOW air flutt um 2,8 millj­ónir farþega.
 
WOW air flýgur nú til hátt í fjörutíu áfangastaða í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Flug til Nýju Delí og Orlando hefst í desember á þessu ári.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024