Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Hjá Höllu opnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Föstudagur 15. júní 2018 kl. 16:08

Hjá Höllu opnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Hjá Höllu, veitingastaður í Grindavík, var með hagstæðasta tilboðið í útboði um rekstur á veitingaþjónustu í suðurbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.  Gerður verður 4 ára samningur um reksturinn. Stefnt er á að opna staðinn síðar í sumar.

Óskað var eftir áhugasömum aðilum með reynslu af veitingarekstri til þátttöku í valferlinu. Byggt var á markaðsrannsóknum meðal tengifarþega sem sýndu að þeir kjósi þekkta matvöru sem sé tilbúin á skömmum tíma, þá helst pítsur og fersk salöt.

Tólf fyrirtæki sóttu útboðsgögn eftir að opnað var fyrir aðgang að þeim 28. mars síðastliðinn. Fjögur þeirra sendu inn upplýsingar um hæfi, þrjú tilboð uppfylltu hæfiskröfur og var þeim sem stóðu að tilboðunum þremur boðið til viðræðna. Í valferlinu var notast við samkeppnisviðræður og að lokum samið við þann aðila sem skilaði inn hagstæðasta tilboðinu. Matsnefnd fór yfir tilboðin og var hún skipuð tveimur fulltrúum frá Isavia og tveimur utanaðkomandi aðilum frá Deloitte.

Gerður verður fjögurra ára samningur við Hjá Höllu um útleigu á aðstöðunni og rekstur veitingaþjónustu í suðurbyggingu flugstöðvarinnar. Mun staðurinn bjóða upp á pítsur, salöt og einn heitan rétt að auki.

Víkurfréttir heimsóttu Höllu árið 2016 og birtu þá sjónvarpsviðtal við hana sem sjá má hér.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024