Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Viðskipti

Fjölbýlishús í Reykjanesbæ byggt úr norskum timbureiningum á sjö mánuðum
Fimmtudagur 14. júní 2018 kl. 09:11

Fjölbýlishús í Reykjanesbæ byggt úr norskum timbureiningum á sjö mánuðum

Modulbyggingar ehf., Moelven ByggModul AS  og þróunarfélagið Klasi ehf., hafa undirritað samning um byggingu fyrsta fjölbýlishússins á Íslandi sem byggt er með einingahúsaaðferðum Moelven í Noregi. Húsið verður byggt í Reykjanesbæ, úr forsmíðuðum timbureiningum og tekur aðeins sjö mánuði í byggingu þar til íbúðir eru tilbúnar til afhendingar fullbúnar, á vel samkeppnishæfu kaupverði, segir í tilkynningu frá Klasa.
 
Fjölbýlishúsið sem Klasi byggir eru íbúðir sem eru fyrst og fremst ætlaðar fyrir eldri borgara enda í góðum tengslum við þjónustumiðstöðina á Nesvöllum.   Byggingin sem nú er komin í framleiðslu verður á fjórum hæðum með 27 íbúðum, en alls er gert ráð fyrir að byggðar verði um 200 íbúðir á Nesvöllum til viðbótar á næstu árum.
 
Um er að ræða umhverfisvænar byggingar en áhersla er á að sú nálgun gangi í gegnum allt ferlið við byggingu og síðan notkun íbúðanna með því að huga að orkusparnaði.  Húsin eru byggð innandyra við bestu aðstæður sem eykur gæði og minnkar sóun.   Allar íbúðir eru með loftræstikerfi sem eykur loftgæði innanhúss og minnkar líkur á rakaskemmdum.  Einnig verður vatnsúðunarkerfi í íbúðunum. Um mjög spennandi nýjung er að ræða hér á landi sem hefur þó fengið mikla reynslu í Noregi við sambærilegar aðstæður og eru hér uppi.  Moelven hefur framleitt yfir 100 ára sögu og hefur því mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði.
 
Af þessu tilefni eru Lars-Brede Aandstad framkvæmdarstjóri Moelven ByggModul AS og Bjørn Ottar Torp yfirverkfræðingur Moelven ByggModul AS komnir hingað til lands og munu taka fyrstu skóflustunguna að húsinu ásamt fulltrúum Modulbygginga og Klasa fimmtudaginn 14. júní kl. 12:15 við Móavelli í Reykjanesbæ. (Nesvellir)
 
„Það er stórt og ákaflega jákvætt skref að ganga frá samningi við Klasa, og við hlökkum til að sýna fram á hversu frábær aðferð þetta er, að byggja fjölbýlishús úr fullbúnum einingum sem skipað er til landsins fullbúnum“ segir Vilhjálmur Sigurðsson einn eigenda Modulbygginga. „Þetta mun svo ganga mjög hratt fyrir sig, einingarnar verða framleiddar í október og íbúðirnar verða tilbúnar til afhendingar í lok árs 2018. Stefnan er að þetta verði það fyrsta af mörgum slíkum húsum á Íslandi. Það er mikill áhugi fyrir þessu byggingarfyrirkomulagi á Íslandi og við gerum ráð fyrir að fleiri svona fjölbýlishús rís hér á landi fljótlega, bæði innan og utan höfuðborgarsvæðisins.“
 
Þróunarfélagið Klasi stendur að byggingu húsanna hefur lengi verið að skoða nýjar lausnir og aðferðir við byggingu íbúðarhúsnæðis.  Félagið stendur að framkvæmdum við byggingu að 201 Smára í Smárahverfi í Kópavogi en þar er verið að byggja um 670 íbúðir.  Þar er verið að skoða ýmsar lausnir og meðal annars unnið eftir hugmyndum almennings við útfærslu og lausnir.
 
„Það er mjög áhugavert að minnka óvissu enda einn stærsti þáttur í byggingu íbúða. Með byggingu þessara íbúða að Nesvöllum þá er bæði hægt að minnka óvissu um kostað en auk þess markaðslega óvissu enda verið að framleiða íbúðir við þekktari markaðaðstæður en ef byggingatíminn væri 18 til 24 mánuðir.  Ssamhliða er verið að auka við gæði og huga að umhverfisvænum lausnum“ segir Ingvi Jónasson framkvæmdastjóri Klasa.
 
Norska fyrirtækið Moelven sem framleiðir einingarnar á langa reynslu á Íslandi, allt frá Viðlagasjóðhúsunum eftir Vestmanneyjagosið til þriggja nýrra hótela sem byggð hafa verið úr einingum frá fyrirtækinu undanfarin ár, Islandia Hotel 2005, Hótel Laxá 2014 og nú síðast Hótel Kría sem opnar í nú Vík í sumar. Moelven er stofnað árið 1899 og hefur framleitt heimili úr timbureiningum síðan 1966. Fyrirtækið leggur áherslu á náttúruleg hráefni og að nýta eins litla orku og efni og mögulegt er við byggingu húsa sinna. Framleiðsla og samsetning fer fram innandyra og áhrif á umhverfið eru lítil og byggingar framleiddar hjá Moelven eru sérstaklega umhverfisvænar.

Public deli
Public deli