Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Viðskipti

Ferskt íslenskt hráefni með skandinavísku yfirbragði
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 16. september 2019 kl. 14:02

Ferskt íslenskt hráefni með skandinavísku yfirbragði

Keflvíkingurinn Jóhann Reynisson er nýr yfirmatreiðslumaður á Max veitingastaðnum á Northen Light Inn hótelinu í Grindavík.

„Við bjóðum alla vekomna á Max veitingastaðinn okkar, sérstaklega hvetjum við Suðurnesjamenn til að líta til okkar. Við höfum hingað til lagt áherslu á hótelgesti en höfum gert smá áherslubreytingar til að víkka út þjónustuna á veitingastaðnum okkar,“ segir Jóhann Reynisson, matreiðslumeistari en hann tók nýlega við starfi yfirmatreiðslumeistara á Northen Light Inn hótelinu í Svartsengi í Grindavík.
Hótelinu hefur vaxið fiskur um hrygg frá því það opnaði árið 1983 en á því eru 42 herbergi. Á hótelinu er einnig veglegt spa þar sem m.a. er hægt að fara á „flot“.

Frá KEF til Noregs

Public deli
Public deli

Jóhann lærði matreiðslu hjá Axel Jónssyni, veitingamanni og eiganda Skólamatar. Hann hefur m.a. starfað hjá Axel en einnig Menu veitingum í Reykjanesbæ en eftir hrun fór Jóhann í víking til Noregs og starfaði þar í 6 ár á stóru ráðstefnuhóteli í bænum Molde. Eldaði þar m.a. ofan í Ole Gunnar Solskjer, þáverandi þjálfara samnefnds knattspyrnuliðs og núverandi þjálfara enska stórliðsins Man. Utd. „Það var góð reynsla og skemmtilegt að flytja til Noregs. Norðmenn eru með aðeins annað tempó en Íslendingar en Ísland togar samt alltaf í mann og ég og fjölskyldan komum aftur heim árið 2015. Þegar ég fékk tækifæri á að koma hingað á þetta flotta hótel í Grindavík sló ég til. Það er gaman að vera komin í ferðaþjónustuna á Íslandi.“



Bjóða Íslendinga velkomna í mat. Sunnudagshlaðborð og Ömmukaffi eru nýjungar

Spes sunnudagar

Jóhann segir að á Northern Inn hótelinu sé allt í boði fyrir hótelgesti og aðra. Boðið er upp á morgunmat, hádegisverð og kvöldverð. Ein af nýjungum á Max veitingastað hótelsins er að bjóða upp á Ömmu kaffihlaðborð á sunnudögum. Á Ömmu hlaðborði eru kökur, tertur og brauðmeti í boði að hætti ömmu. „Við erum með 6-7 tegundir af tertum, m.a. alvöru rjómatertu. Þá er skinku brauðterta er alltaf í boði og rækjusalat,“ segir Jóhann en fleiri hugmyndir matreiðslumeistarans rötuðu inn hjá Northen Light inn en það er  Sunnudags-„roast“ eða hlaðborð. Þar er lambakjötið, hryggurinn góði í aðal hlutverki en einnig er alltaf boðið upp á lax og fleiri rétti ásamt viðeigandi meðlæti. 

Íslenskt hráefni með alþjóðlegu tvisti

En hvað er á matseðli dagsins á Max veitingastaðnum í Grindavík?

„Við leggjum áherslu á ferskt íslenskt hráefni, fisk og kjöt. Það kemur hér daglega nýveiddur ferskur fiskur úr Grindavík og það er því ekkert sem stoppar af að bjóða gott úrval af fiski á matseðlinum. Ég mæli líka sérstaklega með humarsúpunni okkar. Matreiðslan er með skandinavísku yfirbragði með alþjóðlegu tvisti. Hvernig hljómar það?“, segir Jóhann og hlær. Á fjölbreyttum matseðli má sjá marga spennandi rétti og Jóhann segir að matseðlinum sé breytt á þriggja mánaða fresti. Þá sé veglegur vínseðill, úrval kokteila og einnig er boðið upp á vínpörun með mat.

Jólahlaðborð og hópaþjónusta

Aðstaða fyrir hópa og fyrirtæki er góð á hótelinu, salarkynni eru til staðar og öll þjónusta. Á hótelinu eru tveir barir og annar þeirra heitir hinu skemmtilegu nafni „Honesty bar“.

Á Max veitingastaðnum er árlega boðið upp á jólahlaðborð og verður það í boði þrjár helgar í lok nóvember og desember. Að sögn Jóhanns eru komnar þó nokkrar bókanir í jólahlaðborð.

Jóhann segir að á veitingastaðnum starfi gott starfsfólk en veitingastjóri er Grindvíkingurinn Sigrún Einarsdóttir. Það er ekki hægt að sleppa honum öðruvísi en að spyrja hvað sé uppáhaldsmatur kappans. Fyrir matreiðslumeistara á hóteli er gott að komast í góðan heimamat en faðir Jóhanns, Reynir Guðjónsson og Guðjón Vilmar annar tveggja bræðra hans, eru einnig matreiðslumeistarar. „Uppáhaldsmaturinn minn er fiskur í Orly að hætti pabba og svo finnst mér æðislegt að fá mér soðnar kjötfarsbollur með hvítkáli og sinnepi. Viltu eitthvað ræða það?,“ sagði Jóhann. 

Jóhann í eldhúsinu á Max veitingastaðnum.

Ömmukaffi er vinsælt á sunnudögum, tilvalið í sunnudagsbíltúrnum.

Sunday „roast“ er veglegt hlaðborð með lambakjöti, úrval fiskrétta og meðlætis.

Norðurljósin eru vinsæl hjá útlendingum og nafn hótelsins dregur marga ferðamenn á staðinn.