Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Afkoma Isavia jákvæð um 2.186 milljónir króna
Miðvikudagur 12. september 2018 kl. 11:49

Afkoma Isavia jákvæð um 2.186 milljónir króna

- á fyrri árshelmingi 2018

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2018 var jákvæð um 2.186 milljónir króna og jókst um 9% á milli ára. Rekstrartekjur námu 19.015 milljónum króna sem er 2.099 milljóna króna aukning samanborið við sama tímabil á síðasta ári eða 12%. Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 1.571 milljón króna samanborið við 1.482 milljónir króna á sama tímabili á síðasta ári og hækkaði því um 89 milljónir króna. 
 
„Afkoma Isavia var í meginatriðum í takt við áætlanir félagsins,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Ferðamönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll fyrstu sex mánuði þessa árs hefur fjölgað um 15,6% samanborið við sama tímabil í fyrra. Það er veruleg fjölgun sem er að stærstu hluta tilkomin vegna fjölgunar skiptifarþega sem er í takt við spár Isavia. Metfjöldi farþega hefur farið um Keflavíkurflugvöll nú í lok sumars. Sú fjölgun farþega sem hefur orðið hefur tryggt okkur það að aldrei áður hefur verið flogið til jafnmargra áfangastaða frá Íslandi, hvort sem það er í Evrópu eða Norður-Ameríku.“
 
Lykiltölur úr hálfsársuppgjöri 2018
Tekjur: 19.015 milljónir króna
Rekstrarhagnaður: 2.186 milljónir króna
Heildarafkoma eftir skatta: 1.571 milljón króna
Handbært fé: 2.372 milljónir króna
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 3.038 milljónir króna
Eigið fé í lok tímabils: 32.576 milljónir króna
Eiginfjárhlutfall: 43,0%
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024