Viðskipti

3 milljónasti Kia bíllinn afhentur í Reykjanesbæ
Þorgeir Pálsson og Kjartan Steinarsson afhentu Elvari Unndóri Sveinssyni nýjan Kia Ceed GT Line sem er sannkallaður tímamótabíll enda bíll númer 3 milljón sem Kia framleiðir fyrir Evrópumarkað.
Fimmtudagur 26. apríl 2018 kl. 06:00

3 milljónasti Kia bíllinn afhentur í Reykjanesbæ

Kia hefur framleitt 3 milljónir bíla í Evrópu og svo skemmtilega vill til að Kia bíll númer 3.000.000 var afhentur hér á landi í fyrradag, nánar tiltekið hjá K. Steinarsson í Reykjanesbæ. Um er að ræða hvítan, 5 dyra Kia ceed í GT Line útfærslu. Stoltur eigandi þessa tímamótabíls frá Kia heitir Elvar Unndór Sveinsson. Hann fékk bílinn afhentan með viðhöfn í gær og fékk m.a. gjafabréf á Library, HM Monopoly spil, 2 landsliðstreyjur og Kia HM bolta að gjöf frá Bílaumboðinu Öskju.

„Þetta er sérlega ánægjulegt að bíll númer 3.000.000 sem framleiddur er í Evrópu skuli vera afhentur hér á landi. Við erum afar stolt af því og því góða gengi sem Kia hefur náð hér á landi. Merkið hefur var það næst söluhæsta á Íslandi á síðasta ári og hefur verið í þremur efstu sætunum yfir söluhæstu merkin á síðustu árum,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

Kia framleiðir bíla fyrir Evrópumarkað í hátæknivæddri verksmiðju fyrirtækisins í Zilina í Slóvakíu. Þar hafa allar þrjár milljónir bílanna fyrir Evrópumarkað verið framleiddar frá árinu 2006. Á síðasta ári framleiddi Kia alls 335.600 bíla í verksmiðjunni sem er hæsta framleiðsla sem bílaframleiðandinn hefur náð á einu ári í verskmiðjunni.

Þar framleiðir Kia bíla sem uppfylla hæstu gæðaviðmið í álfunni. Verksmiðjan setur ekki einungis ný viðmið í skilvirkni og framleiðni heldur uppfyllir hún um leið ströngustu reglugerðir á sviði umhverfismála sem í gildi eru innan Evrópusambandsins. Gæði er forgangsatriði í allri starfsemi Kia. Af þeim sökum er einn af hverjum 15 starfsmönnum í verksmiðjunni í Zilina ábyrgur fyrir gæðaeftirliti.

Kia hefur mikla trú á gæðum bíla sinna og býður 7 ár ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum sem er lengsta ábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum. Í verksmiðjunni starfa tæplega 4.000 starfsmenn. Unnið er á vöktum allan sólarhringinn í verksmiðjunni þannig að framleiðslan stoppar aldrei.


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024