Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 3. október 2019 kl. 20:30

Suðurnesjamagasín: Ennþá í sumarstarfinu frá 1986

Suðurnesjamagasín er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20:30. Þátturinn er einnig aðgengilegur hér á vf.is.

Ævar Ingólfsson réð sig í sumarstarf á bílasölu árið 1986. Núna, 33 árum síðar, er hann ennþá í starfinu. Ævar starfaði hjá Símanum sem ungur maður. Hann var í verkefnum hjá Varnarliðinu við að draga sjónvarpskapla vítt og breitt um Keflavíkurfugvöll. Hann sá auglýsingu í Víkurfréttum þar sem auglýst var eftir sölumanni í sumarafleysingar hjá Bílasölu Brynleifs. Verandi með bíladellu sótti hann um starfið og fékk.

Sumarstarfið varð til framtíðar og að lokum fór svo að Ævar keypti bílasöluna, byggði yfir hana nýtt húsnæði á besta stað í bænum og er enn að selja Suðurnesjamönnum Toyota. Sjónvarpsmenn Suðurnesjamagasíns fóru á rúntinn með Ævari í vikunni og ræddu við hann um bíla.

Í þætti kvöldsins tökum við einnig hús á Þekkingarsetri Suðurnesja í Sandgerði. Þar hittum við fyrir Hönnu Maríu forstöðukonu og einnig tvær söngkonur af Suðurnesjum sem voru að vinna að verkefni með samnemendum úr Listaháskóla Íslands sem endaði með tónleikum í Garðskagavita.

Suðurnesjamagasín er vikulega á dagskrá Hringbrautar og vf.is en í þættinum er fjallað um málefni líðandi stundar á Suðurnesjum. Þátturinn er úr smiðju Víkurfrétta.