Fimmtudagur 18. apríl 2019 kl. 20:31

Ræddu opinskátt um sjálfsfróun og fullnægingar

- Sigga Dögg kynfræðingur og Sólborg Guðbrandsdóttir frá Fávitar á Instagram

Það var heldur betur opinská umræða um sjálfsfróun, fullnægingar og mörk í kynlífi sem þær Sigga Dögg kynfræðingur og Sólborg Guðbrandsdóttir, stofnandi og umsjónamaður „Fávitar“ á Instagram buðu uppá í beinni útsendingu í Sjónvarpi Víkurfrétta nýverið. Fjallað er um þáttinn í Suðurnesjamagasíni í kvöld.
 
Sólborg opnaði umræðu á Instagram um fullnægingar og viðbrögðin hafa verið mikil og fjölmargar spurningar borist. Því ákvað Sólborg að fá Siggu Dögg til liðs við sig í beina útsendingu þar sem þær ræddu málin umbúðalaust og fjölmörgum spurningum frá áhorfendum var svarað.
 
Sjá þáttinn í spilaranum að ofan.