Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 15. nóvember 2020 kl. 07:41

Munum koma sterkari út úr kórónuveirunni

– segir Ingólfur Karlsson, veitingamaður á Langbest. Engin ferðamannatraffík en sterkur heimamarkaður kemur sér vel á veirutímum. Ný þjónusta að bjóða sendingar út í bíl.

Ingólfur Karlsson, veitingamaður á Langbest, hefur kynnst sveiflum í rekstri á þeim 24 árum sem hann og kona hans, Helena Guðjónsdóttir, hafa átt og rekið veitingastaðinn. Nú er kórónuveirufaraldurinn að setja strik í reikninginn en reksturinn hefur farið í gegnum skafla eins og bankahrun og svo altjón sem varð í bruna þann 17. júní árið 2000.

Langbest er einn þekktasti veitingastaður Suðurnesja með áratuga sögu en staðurinn hefur verið rekinn á Ásbrú frá því skömmu eftir að Varnarliðið fór. Áður var Langbest við Hafnargötuna og um tíma með tvo veitingastaði. Veitingastaðurinn er stór og þar eru um tíu heilsdagsstöðugildi. Ingólfur horfir á stöðuna í dag sem tímabundið ástand en dragist þær aðstæður sem nú ríkja á langinn, þurfi að draga saman seglin.

Aðlaga sig að aðstæðum

– Er þetta staðan, engir gestir?

„Á meðan við erum í þessum takmörkunum með tíu manns þá verður þetta að vera svona. Það er í raun helmingurinn af salnum lokaður en tíu manns mega borða hér inni í einu.“

– Er hægt að reka veitingastað þar sem aðeins má taka á móti tíu viðskiptavinum?

„Nei, raunar ekki. Ekki til lengri tíma að minnsta kosti. Við aðlögum okkur að þessum aðstæðum sem eru þannig að margir viðskiptavinir koma bara og sækja pantanir en við höfum alltaf boðið upp á þá þjónustu og því vel þekkt fyrir. Það eru samt alltaf einhverjir sem vilja bíða eftir þessum sætum sem eru í boði til að borða inni en flestir eru nú bara heima hjá sér í þessu ástandi.“

– Er fólk að fara á netið og panta?

„Hér hefur síminn alltaf verið notaður. Við höfum ekki farið út í það að netvæða að fullu. Veitingastaðurinn Langbest er með flókinn matseðil og það er flókið að búa til heimasíðuna, því sérþarfir eru miklar. Við höfum aldrei verið eins mikið að skoða þetta eins og núna – og mjög líklega munum við gera eitthvað núna því það er ákveðin kynslóð sem vill frekar panta matinn svona. Eldri kynslóðir vilja hringja inn og tala persónulega við starfsfólkið og tryggja að pöntunin fari í gegn.“

Alltaf verið sterk á svæðinu

– Hvernig hefur Covid-19 komið við reksturinn hjá þér?

„Við hjónin erum að fagna 24 ára rekstrarafmæli Langbest í okkar stjórn en veitingastaðurinn er að verða 36 ára, þannig að þetta er vel þekkt merki. Við höfum alltaf verið sterk hér á svæðinu og Suðurnesjafólk hefur verið duglegt að sækja staðinn. Hluti ferðamanna var orðinn stór í okkar rekstri og ég hef verið að reyna að sjá hversu stór hluti þeir voru orðnir en aldrei komist að niðurstöðu með það. Það var ekki hægt fyrr en í raun og veru núna þegar hann þurfti að fara. Við höldum að ferðamaðurinn sé fjórði til fimmti hver viðskiptavinur okkar. Ég ætla ekkert að kvarta yfir því þó það sé farið því það eru margir aðrir veitingastaðir að horfa í allt aðrar og stærri tölur og hafa byggt upp sína staði á ferðamönnum. Ég get ekki ímyndað mér að það geti gengið til lengri tíma. Við höfum sterkan heimamarkað og það er nafn staðarins sem hefur byggt það upp.“

– En eru heimamenn jafn duglegir að sækja staðinn og versla við ykkur á veirutímum?

„Nei, þegar það eru svona hertar samkomutakmarkanir hef ég fundið það á tímalínunni að í fyrstu bylgjunni þegar farið var niður í tuttugu manns þá fór fólk bara heim til sín og lokaði á eftir sér. Þá var ekkert að gera hérna í viku. Svo fór þetta aðeins að lagast en þegar takmarkanir fóru upp í 50 manns, þá tók fólk við sér. Sumarið var mjög gott hjá okkur en fundum fyrir því þegar takmarkanir voru settar á að nýju í byrjun ágúst. Núna, þegar takmarkanir fóru í tuttugu og svo tíu manns, er fólk bara heima hjá sér og verslar í matinn í stórmörkuðum og lætur það nægja í bili. Við hugsum það hér að þetta er tímabundið og förum í gegnum þetta eins og önnur tímabil sem við höfum þurft að takast á við.“

Beint í bílinn

Hjá Langbest er hugsaði í lausnum á veirutímum og nú er boðið upp á þá þjónustu að koma með sendingar út í bíl. Það byrjaði þegar fólk í sóttkví vildi nálgast pantanir en þeir sem eru í sóttkví mega ekki fara inn á veitingastaðinn. Fólk getur því hringt, pantað og gefið upp bílnúmerið. Pöntunin er svo greidd með snertilausri greiðslu.

Matur fyrir hermenn í sóttkví

Nú er nýlokið á Keflavíkurflugvelli umfangsmiklu loftrýmisverkefni þar sem stór bandarísk flugsveit var hér á landi. Langbest hefur ávallt verið vinsæll veitingastaður hjá liðsmönnum erlendra herja á flugvellinum. Í ár hefur sóttkví flækt stöðuna en Langbest á í góðu samstarfi við hótelið Bed & Breakfast sem er í næsta húsi við Langbest og því voru matarpantanir afgreiddar þangað. Ingólfur segir að það hafi verið góð uppgrip að geta boðið upp á veitingar fyrir liðsmenn í loftrýmisgæslunni á þessum síðustu og verstu tímum.

Lært af sögunni

– Þið haldið áfram að berjast?

„Það er ekkert annað í boði hér. Öll þessi 24 ára reynsla sem við höfum af veitingarekstri hefur kennt okkur gríðarlega margt og maður hefur þurft að reka sig á marga hluti. Ég veit að þessi veitingastaður mun fara í gegnum þennan tíma og koma sterkari út úr honum þegar upp er staðið.“

Tveir starfsmenn á vaktinni bíða eftir pöntun. Taka í spil á meðan. Tómur veitingasalur frammi.