Föstudagur 6. nóvember 2020 kl. 17:30

Már Gunnarsson og íslenskir afreksíþróttarmenn senda kveðju

Már Gunnarsson hefur sent frá sér glænýja útgáfu af Heyr mína bæn. Með laginu senda íslenskir afreksíþróttamenn kveðju í því ástandi sem nú ríkir.

Útsetning lagsins er eftir Má Gunnarsson og Stefán Örn Gunnlaugsson. Hilmar Bragi Bárðarson sá um upptökur og klippingu á myndbandinu en Stöð 2 og íslenskir afreksíþróttamenn lögðu til myndefnið ásamt Hilmari Braga.

Útsetning: Már Gunnarsson og Stefán Örn Gunnlaugsson
Upptökustjórn: Stefán Örn Gunnlaugsson
Söngur: Már
Trommur Kristinn Snær
Bassi: Maciek Szczycinski
Gítar: Piotr Malicki
Bakraddir: Stefán Örn og Pétur Örn Guðmundsson
Mastering: Marian Lech
Myndband: Hilmar Bragi