Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 8. nóvember 2019 kl. 07:46

Leikskólinn Skógarás fékk umhverfisverndar verðlaun

Á dögunum hlaut Heilsuleikskólinn Skógarás verðlaun fyrir besta eTwinning verkefni síðasta skólaárs en það heitir „Litli vistfræðingurinn“ (The Little Ecologist). Verðlaunin voru veitt af landsskrifstofu Erasmus+ á Íslandi (Rannís) við hátíðlega athöfn.

Að sögn Þóru Sigrúnar Hjaltadóttur, skólastjóra er verkefnið hluti af „Eco Tweet“ en það er Erasmus+ verkefni skólans. Um er að ræða umhverfisverndarverkefni þar sem nemendur læra um leiðir til þess að gæta að umhverfinu og taka ákvarðanir þar af lútandi. Í verkefninu læra börnin m.a. um vistfræði, verndun dýra, gróðursetningu, tré, kryddplöntur, vatn og endurvinnslu svo eitthvað sé nefnt.

Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar og Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi Reykjanesbæjar heimsóttu skólan af þessu tilefni og færðu honum bókagjöf í tilefni þessarar viðurkenningar.

Fjallað var um málið í Suðurnesjamagasíni og hér fylgir innslagið þaðan með fréttinni.