Þriðjudagur 21. apríl 2020 kl. 07:14

Heimilisfræðikennari sem hugsar í lausnum

Rannveig Sigríður Ragnarsdóttir kennir heimilisfræði á nýstárlegan hátt þessa dagana við grunnskólann í Sandgerði og nýtir svo sannarlega tæknina. Víkurfréttir tóku hana tali og inntu hana eftir því hvernig fjarkennsla í heimilisfræði færi fram.

Umfram allt að hafa gaman saman

„Á tímum sem þessum þarf maður að hugsa í lausnum og er það í anda Sandgerðisskóla sem reynir að mæta þörfum nemenda með lausnamiðaðri nálgun. Flestir nemendur hafa gaman af heimilisfræði og vildi ég því leggja mitt á lóðarskálarnar þegar allar verk- og valgreinar lögðust af. Sjálf er ég menntaður félagsráðgjafi og því vön að leita lausna. Því datt mér í hug að taka upp fjarkennslumyndband, byrja á einhverju einföldu, kryddbrauði, og fara yfir uppskriftina og aðferðina skref fyrir skref. Með því vildi ég reyna að ná bæði til yngri nemenda sem og eldri. Tilgangurinn var að kenna nemendum í gegnum fjarkennslu, virkja þá, stuðla að aukinni samveru fjölskyldunnar en umfram allt að hafa gaman saman.“

Ekki hrifin af myndavélinni

„Þessu fylgdu vissulega ýmsar áskoranir. Ég er ekki sú viljugasta við að vera fyrir framan myndavélina en vildi ekki láta það stoppa mig. Auk þess hafði ég enga þekkingu á klippiforritun til að vinna myndböndin en með þolinmæði mjakast þetta í rétta átt. Ætli ég verði ekki orðin ágæt í þessu þegar nemendur byrja aftur að mæta í skólann.

Þegar hugmyndin í loftið var komin var ekki aftur snúið. Þar sem heimilisfræðistofan í skólanum var orðin að kaffistofu fyrir hluta starfsfólks, ákváð ég að nota eldhúsið heima hjá mér og nýta myndavélina í símanum til að taka þetta upp. Nú hef ég gert þrjú myndbönd, kryddbrauð, eplaböku og súkkulaðiköku svo komin er ágæt reynsla á þetta kennslufyrirkomulag. En heimilisfræði snýst um svo miklu meira en að baka, svo það eru komnar ýmsar hugmyndir af fleiri verkefnum.“

Nemendum finnst þetta skemmtilegt

„Viðbrögðin hafa vægast sagt verið frábær, áhorf yfir nokkur þúsund. Það eru ekki eingöngu nemendur Sandgerðisskóla sem hafa nýtt sér myndböndin heldur einnig nemendur og fullorðnir víðsvegar um landið, auk þess sem aðrir heimilisfræðikennarar hafa fylgt þessu eftir. Dásamlegast þykir mér þegar það eru settar myndir inn á skólasíðuna eða þær sendar mér í tölvupósti þar sem við sjáum bakarameistarana að verki. Ég verð svo þakklát þegar ég veit af nemendum mínum fylgja þessu eftir, þá veit ég að tilganginum er náð. Einnig hef ég fengið mikinn meðbyr og hvatningu frá stjórnendum skólans og skólaritaranum sem allar hafa fulla trú á mér og markmiðinu sem er að halda í það jákvæða, hafa gaman og njóta.“

Hægt er að fylgjast með og sjá myndböndin undir síðu Sandgerðisskóla (sandgerdisskoli.is) eða á facebook síðu skólans (Sandgerðisskóli).