Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 17. apríl 2020 kl. 11:59

Fastur í næsta bæ við Suðurskautslandið

Ingvar Þór Jóhannesson er verksmiðjustjóri á frystiskipinu San Arawa II sem gert er út frá Argentínu. Skipið kom í höfn í Ushuaia í Argentínu fyrir næstum mánuði síðan. Ushuaia er syðsta byggða ból í Argentínu og í raun næsti bær við Suðurskautslandið. Ingvar er ennþá fastur um borð í skipinu þar sem lokað er fyrir allar samgöngur frá svæðinu vegna COVID-19.

Ingvar hefur búið í Argentínu í sautján ár og starfað á verksmiðjutogurum í þrjá áratugi. Hann flutti tvítugur til Nýja Sjálands og var þar á verksmiðjuskipum í þrettán ár og hefur verið í sautján ár á skipum sem gerð eru út frá Argentínu.

MARGT FLEIRA Í FJÖLBREYTTUM 76 BLS. VÍKURFRÉTTUM VIKUNNAR