Pistlar

Þúsund manns í Bingó!
Þriðjudagur 19. apríl 2022 kl. 11:08

Þúsund manns í Bingó!

Lífið er sem betur fer að komast í réttan farveg á nýjan leik eftir heimsfaraldur og ljóst að þrá fólks í „eðlilegt“ líf er mjög mikil. Í pistli mínum fyrr í vetur talaði ég um að hliðin væru að opnast þegar heilbrigðisráðherra gaf það út að öllum takmörkunum yrði aflétt í lok febrúar. Greinilegt að löngun fólks í eðlilegt líf var nokkuð meiri en mann grunaði. Mannfagnaðir eru nú haldnir á hverju strái, eru afar vel sóttir af fólki úr öllum aldurshópum og gleðin skín úr hverju andliti. Enda skal engan undra því við eigum sennilega aldrei eftir að taka þessum mannfögnuðum sem sjálfsögðum hlut á nýjan leik eftir þær raunir sem hafa dunið á okkur síðustu tvö árin. Ef einhver hefði t.d. sagt mér fyrir einhverjum árum síðan að yfir 1.000 manns myndu sækja BINGÓ-skemmtanir hjá tveimur íþróttadeildum hér í bæ þá hefði ég hlegið dátt að viðkomandi – en sú varð raunin núna í lok mars og í byrjun apríl þegar körfuknattleiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur stóðu fyrir fullorðins Bingóviðburðum. Afar vel heppnað hjá deildunum og fólk á öllum aldri fjölmennti og skemmti sér vel. Eins og ein „heldri“ kona orðaði það svo vel við mig þá voru vinningarnir aukaatriði, þótt þeir væru glæsilegir, aðalmálið var að komast út og hitta fólk, dansa og hafa gaman! Svona hlutir hafa eðlilega verið af skornum skammti síðustu tvö ár með öllum þeim takmörkunum sem hafa verið í gildi en núna erum við öll eins og beljur á vorin að fagna langþráðu frelsinu. Persónulega hef ég saknað mannfagnaða gríðarlega enda haft það sem aukastarf síðustu tuttugu árin að taka að mér veislustjórn eða ræðuhöld á alls kyns viðburðum. Þetta er bara svo ótrúlega gaman og er alveg ómissandi þáttur mannlífsins að fólk hittist og skemmti sér saman. Enda hefur maður séð það augljóslega síðustu vikur að fólk hefur saknað mannfagnaða og viðburða enda stemmningin heldur meiri núna en í venjulegu árferði. Mér þótti það svo gaman um daginn þegar maður hringdi í mig utan af landi fyrir nokkrum vikum síðan en sá hafði bókaði mig sem veislustjóra í brúðkaup sitt snemma árs 2020 en því var frestað. Núna fékk ég símtalið og brúðkaup fer fram í ágúst 2022, reyndar ekki sama konan sem hann ætlar að giftast en loksins komið að þessu! Þarna verður pottþétt stuð!

Örvar Þór Kristjánsson

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024