Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Pistlar

Lokaorð Örvars Þórs: Uppsögn
Laugardagur 9. maí 2020 kl. 10:55

Lokaorð Örvars Þórs: Uppsögn

Ég var einn af þeim 2000 starfsmönnum Icelandair sem fékk uppsagnarbréf í síðustu viku. Vissulega hundfúlt en við þessar aðstæður, þar sem allt flug liggur nánast niðri, mátti alveg búast við þessu. Þrátt fyrir að hafa fengið uppsögn er ég brattur og bjartsýnn enda ekkert annað í boði en að halda áfram. Ég veit að staðan er alvarleg og erfiðleikar eru framundan en ég hef einnig sterka tilfinningu á því að við gætum verið miklu fljótari upp úr holunni en marga grunar.

Ég er bara það jákvæður að eðlisfari að ég neita að sjá eintóm dökk ský framundan. Ísland hefur staðið sig vel í þessum faraldri og hér hefur smitum fækkað gríðarlega sem og víðar í Evrópu. Dyrnar eru að opnast hægt og bítandi enda eru margar þjóðir að leita skynsamlegra leiða til þess að opna landamæri fyrir ferðamönnum á ný. Íslensk stjórnvöld hljóta að vera að skoða allar leiðir með opnum hug. Austurríki ætla til dæmis að bjóða upp á hraðskimanir á Wien Schawechat flugvelli fyrir þá sem koma til landsins. Niðurstöður koma innan tveggja, þriggja klukkustunda. Fólk getur líka komið með nýlegt (ekki eldri en fjögurra daga) læknisvottorð um að það beri ekki smit. Þetta lýst mér persónulega mjög vel á og neita að trúa öðru en að okkar stjórnvöld séu að skoða álíka leiðir. Ekki flókið þar sem við erum bara með einn flugvöll inn í landið. Við erum líka með þetta fína smitrakningarapp sem gæti verið skylda að virkja þegar þú kemur inn í landið, þá er hægt að rekja smit ef þau verða. Ísland hefur allt það sem fólk ætti að þrá eftir svona hörmungar, náttúrufegurðina, víðáttuna, fámennið, traust heilbrigðiskerfi og öryggið. Vitna í frábært viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson sem sagði að þetta gæti verið stórkostlegt tækifæri fyrir Ísland til að markaðssetja sig sem hreint land og öruggt og beina þeirri markaðssetningu til Asíu, umfram allt Kína. Þarna er ég svo hjartanlega sammála Ólafi. Tækifærin eru nefnilega til staðar fyrir Ísland þar sem stærri ferðamannalöndin verða mun lengur að jafna sig og þröngar stórborgirnar eiga ekki eftir að heilla jafn mikið. Þess vegna er ég sannfærður að ef menn halda rétt á spilunum þá getum við auðveldlega afstýrt hörmungum. Viljum við hugsa þá hugsun til enda að atvinnuleysi t.d. hérna á Suðurnesjunum verði 30–35% til lengri tíma? Alls ekki. Hugsum jákvætt, þrýstum á að tækifærin verði nýtt. Ferðaþjónustan kom okkar þjóð út úr hruninu og mun gera það aftur núna. Ferðaþjónustan mun hrynja víða um veröld og þarf talsverðan tíma til þess að jafna sig en hér á Íslandi þarf það ekki að gerast. Nú þarf að sýna hugrekki og nýta tækifærin sem eru til staðar. Þingmenn kjördæmisins, látið í ykkur heyra. Áfram Ísland!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Örvar Þór Kristjánsson.

PS: Á þessum tímum myndi ég vilja sjá sveitarstjórnarfólkið okkar sýnilegra og jákvæðara, vera bratt og tala samfélagið upp hérna. Ekki veitir af.