Pistlar

K-áramót
Föstudagur 1. janúar 2021 kl. 07:36

K-áramót

Þegar jólahátíðin var við það að ganga í garð hélt ég í fávisku minni að ekki væri hægt að toppa rifrildi Kára og Þórólfs um hver hefði átt hugmyndina af því að gera íslensku þjóðina að tilraunadýrum fyrir amerískt stórfyrirtæki. Hófst þá Jólamessa Samfylkingarinnar. Einhver fjallmyndarlegur sjálfstæðismaður hafði rambað inn á listsýningu seint á Þorláksmessu. Logi á aðfangadag, Helga Vala á jóladag og loks formaður þingflokksins, öflugasti þingmaður Suðurnesja vildi ólmur komast í vinnuna milli jóla- og nýárs til að ræða málið. Í því er þingmaðurinn sérfræðingur. Ræða málin. Minna um efndir. En það þekkja Suðurnesjamenn frá þingmönnum sínum. Ég hélt á tímabili að ég þyrfti að láta efnagreina sykurskertu malt og appelsínblönduna – ég væri að sjá ofsjónir í sjónvarpinu yfir jólin. Hvarf andi jólanna í Covid? Hvað varð um fyrirgefninguna?

Íslensk pólitík er svo vitlaus að það heyrist ekki hóst eða stuna þegar borgarar, sem eiga samkvæmt lögum að teljast frjálsir, eru boðnir til sölu sem tilraunadýr til erlends stórfyrirtækis.  En þegar breyskur maður gengur grímulaus inní mannfjölda uppfullur af anda jólanna, fer allt á hliðina. Fyrirgefningin er víðs fjarri. Allt kapp er lagt á að ná höggstað á einstaklinginn. Því málefnastaðan er engin. Það er ekkert til umræðu nema veiran.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Allt frá því ég man eftir mér hef ég glott út í annað þegar ég hef séð fólk ferðast með grímur. Þvílíkt grín. Á innan við ári er búið að takast að gera þær að skyldu. Þetta er í raun fyndið. Ef ég hefði skrifað í lokaorð Víkurfrétta í desember 2019 að ég krefðist þess að þið öll bæruð andlitsgrímu meirihluta næsta árs, þá hefði vaknað grunur um einhverja röskun. Ef ég hefði svo bætt í með banni við ástundun íþrótta og banni við skólagöngu hefði ég líklegast verið lagður inn.

Við innlögnina hefði ég tvinnað áfram að ráðherra Vinstri grænna sem allt vill gera fyrir græna framtíð hefði pantað með einkaþotu einn kassa af bóluefni og tekið á móti kassanum með viðhöfn ... nei hættu nú.

Raunveruleikinn er ótrúlegri en nokkur skáldsaga.

Með tímanum gleymast vondu minningarnar en þær góðu lifa. Keflavík er komið í Pepsi Max, bæði í karla og kvenna. Ég sé Íslandsmeistaratitil í náinni framtíð – og Sveindís Jane. Hún verður alvöru stjarna.

Ég kveð grímurnar, veldisvöxtinn, fyrirmyndarfjalægðina, þríeykið og Kára með engum söknuði. Býð velkomið 2021, ár gagnrýninnar hugsunar, brosa, faðmlaga, sigra og  kosninga.

Gleðilegt nýtt ár.