Mannlíf

„Þurfum að leggja áherslu á að öll börn fái sömu tækifæri“
Bryndís ásamt fulltrúum frá öllum leikskólum Reykjanesbæjar ásamt fræðsluráði bæjarins.
Sólborg Guðbrandsdóttir
Sólborg Guðbrandsdóttir skrifar
laugardaginn 24. ágúst 2019 kl. 07:02

„Þurfum að leggja áherslu á að öll börn fái sömu tækifæri“

- segir talmeinafræðingurinn Bryndís Guðmundsdóttir sem færði leikskólum veglega gjöf

Allir leikskólar á Íslandi fá nú heildstætt efni úr verkefninu Lærum og leikum með hljóðin, sem er framlag Bryndísar Guðmundsdóttur, talmeinafræðings, til allra barna landsins. Bryndís hefur starfað í rúmlega þrjátíu ár sem talmeinafræðingur hérlendis og hefur gefið út efni ætlað barnafjölskyldum og skólum. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar en í pakkanum sem leikskólarnir hlutu að gjöf á dögunum má finna verkefnabók, myndaspjöld, kennslubók fyrir bókstafinn R, kennslubók fyrir bókstafinn S, límmiðasett, málhljóðapúsl, tvö púsl með samhljóðum og sérhljóðum og vinnusvuntur. Að lokum verða fimm smáforrit fyrir iPad gefin til allra skólanna.
„Börn fæðast með misjöfn spil á hendi og við þurfum alltaf að leggja áherslu á að öll börn fái sömu tækifæri. Þessi grunnur að jöfnuði er lagður í leikskólana, að öll börn, sama úr hvers konar umhverfi þau koma, hafi sömu tækifæri þegar þau hafa lokið skólagöngu sinni. Mér finnst þetta rosalega mikils virði,“ sagði Bryndís á afhendingu pakkanna til leikskólanna í Reykjanesbæ sem fram fór í Fjölskyldusetrinu í síðustu viku.

Læsi eykur framtíðarmöguleika

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki skóla. „Við vitum að það er mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri með áherslu á þá þætti sem rannsóknir sýna að skipta meginmáli fyrir framtíðarnám barnanna okkar. Lærum og leikum með hljóðin kennir framburð hljóða, hljóðavitund og bókstafi, þjálfar hljóðkerfisþætti, eykur orðaforða og hugtakaskilning, auk þess að gefa fyrirmynd að setningagerð og mörgum málfræðiþáttum íslenskunnar. Það er von okkar allra sem stöndum að verkefninu að með góða íslenskukunnáttu og læsi í farteskinu aukist framtíðarmöguleikar og jöfnuður meðal allra barna sem alast upp á Íslandi,“ segir Bryndís en samstarfsaðilar verkefnisins eru fyrirtækin Marel, Lýsi, IKEA og hjónin Björgólfur Thor og Kristín Ólafsdóttir auk aðkomu Raddlistar, sem er fyrirtæki Bryndísar í talmeinaþjónustu. Þá sáu Cargo flutningar um að koma efninu til skila til leikskóla um allt land ásamt fjölmörgum öðrum einstaklingum.

„Mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri“

Ánægð með starfsfólk leikskóla Reykjanesbæjar
Auk efnisins sem leikskólar landsins hafa nú fengið verða smáforrit Raddlistar í boði fyrir almenning, þeim að kostnaðarlausu, fram í septemberlok. Þá er einnig fjöldi myndskeiða á YouTube-rásinni „Lærum og leikum“ þar sem farið er ítarlega yfir það hvernig nota megi efnið. Á afhendingunni þakkaði Bryndís starfsmönnum leikskólanna í Reykjanesbæ fyrir samstarfið síðustu ár. „Það hefur verið frábært að vinna með ykkur. Ég fylgist vel með og ég er afskaplega ánægð með þann góða árangur sem mér sýnist vera að viðhaldast. Það er ekki síst vegna þess að þið eruð að vinna svo frábært starf.“

Hægt er að fylgjast nánar með verkefninu á heimasíðunni laerumogleikum.is.

Sólborg Guðbrands

Bryndís Guðmundsdóttir hefur starfað sem talmeinafræðingur í 30 ár.

Bryndís afhendir Brynju og Halldóru frá leikskólanum Vesturbergi gjöfina.

Læsi er mikilvægt að hafa í farteskinu að sögn Bryndísar.

Bryndís með Helga Arnarssyni, sviðsstjóra fræðslusviðs og Ingibjörgu Bryndísi Hilmarsdóttur, leikstjórafulltrúa.