Mannlíf

„Ég ætla að muna eftir ykkur á jólunum“
Gamaldags jólatrésskemmtun í Duus safnahúsum á sunnudag
Fimmtudagur 5. desember 2019 kl. 09:20

„Ég ætla að muna eftir ykkur á jólunum“

Með þessum orðum kvaddi kaupmannsfrúin Ása Olavsen börnin í Keflavík sem hún hafði boðið til sín í veislu, í fínasta hús bæjarins Fischershús, einn fagran sumardag í kringum aldamótin 1900. Frú Ása var eiginkona Ólafs Olavsens forstjóra og meðeiganda Duusverslunar.

Og frú Ása stóð við sitt. Upp frá þessu stóð Duusverslunin fyrir glæsilegum jólatrésskemmtunum í Bryggjuhúsinu um tuttugu ára skeið. Þar komu saman öll börn bæjarins og úr nágrannabyggðum, allt upp undir 300 börn og sáu þá mörg þeirra jólatré í fyrsta sinn. Skemmtunin hófst seinnipartinn og stóð fram undir miðnætti. Dansað var í kringum jólatréð, söngvar sungnir og veitingar reiddar fram. Um miðnætti tók fullorðna fólkið við og skemmti sér fram eftir nóttu. Ljóst er að þessar skemmtanir hafa verið mikil upplyfting á þeim tíma þegar Keflavík var aðeins fátækt þorp og fátt við að vera.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Frú Ása Olavsen tekur á móti börnunum

Nú lítum við um öxl og rifjum upp þennan 100 ára gamla merkilega viðburð með jólatrésskemmtun í Bryggjuhúsinu í anda gömlu skemmtananna sunnudaginn 8. desember.

Frú Ása Olavsen tekur á móti börnunum eins og forðum og dansað verður í kringum jólatréð. Auðvitað mætir jólasveinn af gamla skólanum á svæðið. Við hvetjum fjölskyldur til að koma saman og njóta þess að líta til baka á gamlar hefðir og upplifa einfaldleika jólanna og hinn sanna jólaanda.

Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir 8. desember og er aðgangur ókeypis.

Jólaballið hefst stundvíslega kl. 14, dagskrá lýkur kl. 15.

Ratleikur og óskalistar til jólasveinanna

Á aðventunni stendur fjölskyldum einnig til boða að fara í ratleik í Bryggjuhúsinu og leita að gömlu jólasveinunum sem hafa falið sig hingað og þangað um húsið. Þá er hægt og biðja Skessuna í hellinum um að koma óskalista til jólasveinanna.

Jólaföndur í Duus