Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Yndislegt að finna skilyrðislausa ást Sóldísar litlu frænku í Liverpool
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
sunnudaginn 10. maí 2020 kl. 13:46

Yndislegt að finna skilyrðislausa ást Sóldísar litlu frænku í Liverpool

Bryndís Gunnlaugsdóttir er úr Grindavík en búsett í Kópavogi og starfar sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga ásamt því að þjálfa körfubolta.

„Ég er fædd og uppalin Grindvíkingur og lít alltaf á Grindavík og Suðurnesin í heild sem mitt heimasvæði eftir að hafa verið það lánsöm að sitja í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum samhliða því að vera forseti bæjarstjórnar í Grindavík,“ segir hún í samtali við Víkurfréttir.

Public deli
Public deli

– Líturðu björtum augum til sumarsins?

Já, verður maður ekki að gera það? Ég vona bara innilega að það verði gott sumar þannig að það sé hægt að ferðast auðveldlega innanlands og skoða landið. Ég sé fyrir mér að geta heimsótt marga staði hérlendis sem hafa verið á heimsóknarlistanum en ekki tími gefist tími til að heimsækja.

– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau?

Körfubolti er áhugamál númer eitt, tvö og til hundrað og þetta hefur haft gífurleg áhrif á körfubolta. Ég er aðstoðarþjálfari í 1. deild kvenna hjá ÍR og liðið í öðru sæti í deildinni í keppni um að komast upp í úrvalsdeild og svekkjandi að missa af úrvalsdeildarsæti svona. Hefði frekar viljað tapa inn á vellinum í úrslitakeppni.

– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan?

Ég er svo heimakær að ég mun alltaf segja Grindavík, Þorbjörninn og Bláa lónið en ef ég fer út fyrir heimabæinn þá er það Höfn í Hornafirði. Eitthvað svo skemmtilegt við bæjarfélagið og fólkið þar og vonandi gefst mér tækifæri í sumar til að gista þar í nokkrar nætur og skoða nágrenni svæðisins betur.

– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?

Vinna, ferðast innanlands og vonandi get ég flogið til Liverpool og hitt systur mína og hennar fjölskyldu þar. Það er mjög erfitt að vita ekki hvenær ég fæ tækifæri til að sjá þau næst. Svo verja tíma með stórfjölskyldunni og vinum.

– Hver voru plönin áður en veiran setti strik í reikninginn?

Ég var aðstoðarþjálfari hjá U-20 kvenna í körfubolta og planið var að fara til Ísrael á Evrópumót ásamt því að heimsækja systur mína og hennar fjölskyldu til Liverpool. Það er búið að flauta Evrópumótið en vonandi kemst ég til Liverpool.

– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst?

Já, þetta er mjög furðulegt ástand. Fyrst var allur körfubolti flautaður af og síðan var allur vinnustaðurinn sendur heim og ég vinn því heiman frá mér. Þar sem ég bý ein þá er þetta mjög furðulegar aðstæður að fara frá því að vera umkringd fólki alla daga í það að vera ein heima og hitta fáa sem enga.

– Finnst þér fólk almennt virða reglur tengdar samkomubanni?

Já, ég held það, svona flestir. Ég, eins og fleiri, hef smá áhyggjur af unga fólkinu, þ.e.a.s. 18–29 ára en flest smit hafa fundist þar. Ég vona að sá hópur, eins og allir aðrir, fari eftir þeim reglum sem okkur eru sett því ástandið er örugglega farið að taka á fyrir þann hóp sem er fastur heima fyrir í verndarsóttkví.

– Hvaða lærdóm getum við dregið af heimsfaraldrinum?

Það er svo margt hægt að nefna hér en ég held að ef ég ætti að taka út helstu þrjú atriðin væri það í fyrsta lagi að heimurinn er lítill og það sem ógnar framtíð mannkyns virðir engin landamæri, alþjóðasamstarf er því lausnin. Í öðru lagi er betri skilningur á aðstæðum hælisleitenda og flóttafólks sem kemur til Íslands. Margir Íslendingar hafa kvartað yfir því að vera „fast heima“ og geta ekki gert allt sem það er vant að gera, svo sem fara í klippingu eða í ræktina en þessar aðstæður eru smávægilegar í samanburði við þann hóp sem leggur lífið í hættu til að koma til Íslands til að forðast stríð og/eða hungursneyð. Í þriðja lagi tel ég gott að Íslendingar hafi lært að hægja á sér, njóta þess að vera með sínum nánustu og ekki vera í endalausu kapphlaupi frá einum stað til annars. Núvitund hefur vonandi aukist hjá flestum.

– Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

Gamli, góði síminn stendur alltaf fyrir sínu og síðan er það Messenger, Teams og Zoom. Vil samt hvetja fólk til að fara varlega þegar verið er að nota Zoom þar sem margir öryggisgallar hafa fundist þar.

– Ef þú fengir bara að hringja eitt símtal í dag, hver fengi það símtal og hvers vegna?

Sóldís, litla frænka í Liverpool, það er svo yndislegt að finna skilyrðislausa ást hennar til frænku sinnar. Markmiðið okkar er að fara að lesa bækur saman í gegnum Messenger og ég vil standa við það samkomulag okkar. 

– Ertu liðtæk í eldhúsinu?

Nei, ég get ekki sagt það, ég kann að elda nokkra góða rétti, þar á meðal mjög góða humarpizzu, en lítið annað. Annars er lykillinn bara að fara eftir uppskriftum þá yfirleitt heppnast maturinn vel.


– Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

Mér finnst gaman að elda allan mat ef ég hef tíma til þess og góða vini sem koma í heimsókn. Eins og ég nefndi að ofan, lykillinn er bara að hafa góða uppskrift og nægan tíma.

– Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?

Humar í öllu mögulegu formi, grillaður, á pizzu, í pasta o.s.frv.

– Hvað geturðu ekki hugsað þér að borða?

Ég er svo matvönd að það er langur listi en lifur og hjörtu eru þar efst.

– Hvaða morgunmatur verður oftast fyrir valinu?

Ég er eiginlega hætt að borða morgunmat en þegar ég fæ mér morgunmat þá er það haframúslí með súkkulaðihleðslu út á.

– Hvað var bakað síðast á þínu heimili?

Ég bakaði Brownie nýlega með piparlakkrískurli.

– Ef þú fengir 2000 krónur, hvað myndir þú kaupa í matinn?

Caj P’s folaldavöðva, sætar kartöflur, gulrætur og papriku. Grilla svo allt saman og bera fram með Olifia ólífuolíu.

Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali? Hver er spurningin og svarið við henni?

– Hvað hlakkar þig mest til að gera þegar ástandið verður aftur eðlilegt?

Ég get ekki beðið eftir því að knúsa fjölskylduna mína, mömmu, pabba, ömmu, afa og systur mínar og þeirra fjölskyldu. Svo get ég ekki beðið eftir því að ræktin opni aftur svo ég geti lyft þyngri lóðum en heimaræktin bíður upp á.