Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Verk úr safneign sýnd í Duus
Þriðjudagur 4. júní 2019 kl. 15:00

Verk úr safneign sýnd í Duus

-Málverk, skissur og steindir gluggar

Sú hefð hefur skapast á liðnum árum að á einni af sumarsýningum Listasafns Reykjanesbæjar eru sýnd verk úr eigu safnsins.

Að þessu sinni verða sýnd verk eftir Benedikt Gunnarsson listmálara en fjölskylda Benedikts gaf safninu nokkur málverk í vor ásamt skissum af steindum gluggum sem Benedikt vann fyrir Keflavíkurkirkju árið 1977. Þegar kirkjan var færð til upprunalegs horfs árið 2012 voru gluggarnir teknir niður og settir í geymslu en nú má sjá 6 þessara glugga á sýningunni í Bíósal.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Safnið er opið alla daga frá 12-17.