Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Vegglist í Keflavík heillaði forsetann
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 22. janúar 2022 kl. 12:11

Vegglist í Keflavík heillaði forsetann

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, átti erindi til Reykjanesbæjar um nýliðna helgi og notaði tækifærið og skokkaði um bæinn.

„Um helgina hafði ég óvænt nægan tíma en nýtti hann ekki í neitt nema dívans dorm (eins og segir í gömlu lagi Stuðmanna) þar til ég dreif mig út að hlaupa, átti erindi í Reykjanesbæ og skokkaði um bæinn og út fyrir eins og meðfylgjandi sjálfur sýna. Hreint loft er gulls ígildi. Listaverkið á útveggnum gladdi mig mjög, gaf manni kraft á lokakaflanum, rétt eins og fallbyssan frá Landhelgisgæslunni fyrir framan Duus-hús. Gaman var líka að sjá margt fólk á ferð, gangandi og hlaupandi. Alltaf er gott að líta við suður með sjó,“ skrifar Guðni forseti á Fésbókarsíðu embættisins.

Public deli
Public deli

Þar minnir hann einnig á átak í þágu líkama og sálar. „Slöbbum saman“ heitir það og má sjá nánari upplýsingar á vef UMFÍ. Forsetinn skrifar einnig um handboltann og endar svo færsluna á kórónuveirunni.

„Í síðustu viku tóku hertar sóttvarnir gildi og vara fram í byrjun febrúar. Við þreyjum þorrann þannig. Sem fyrr getum við Íslendingar þakkað fyrir að hér býr fólk sem vill leggjast saman á árarnar þegar þörfin krefur, fólk sem kynnir sér mál og kemst að upplýstri niðurstöðu. Um leið fer fram stöðug umræða um kosti og galla aðgerða hverju sinni og sem betur fer bendir flest til þess að sá vágestur, sem við er að eiga, veikist með tímanum. Varnir hljóta að taka mið af því.

Góðar stundir.“

Hér má sjá heimasíðu listamannsins sem málaði vegglistaverkið sem forsetinn dáist að.