Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Úr fiskeldi í fasteignabransann
Páll á skrifstofu sinni í Grindavík
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 16. febrúar 2023 kl. 08:00

Úr fiskeldi í fasteignabransann

„Þegar fólk vill flytja á ákveðinn stað þá leiðir það til eftirspurnar eftir húsnæði og þegar eftirspurn er fyrir hendi þá hækkar verðið, það er einfalt lögmál sem mun aldrei breytast,“ segir Páll Þorbjörnsson, eigandi Allt fasteigna en hann er með bakgrunn í fiski og fiskeldi en fór í fasteignasölu.

Palli eins og hann er venjulega kallaður, hefur búið í Grindavík síðan 2004 en hann er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann eignaðist tvö börn með konu þaðan en er í dag kvæntur Grindvíkingnum Jenný Rut Guðjónsdóttur og eiga þau þrjú börn saman. Áhugamálin hafa snúist um bíla og golf en í dag keyrir hann fjórhjólið sitt af fullum krafti ásamt hópi fólks frá Suðurnesjunum. Eins er hann að draga golfkylfurnar fram aftur en hann náði draumahögginu á Húsatóftavelli árið 2006, fór sem sagt holu í höggi.

„Ég er fæddur árið 1979 í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Það var frábært að alast upp í Eyjum og ég er ekki frá því að samfélagið þar sé keimlíkt samfélaginu í Grindavík. Fjölskyldan fluttist síðan í Reykjavík þegar ég var fjórtán ára og þó svo að mér hafi liðið vel þar þá fann ég fljótt að þetta var ekki eins og smáborgarinn togaði í mig svo ég flutti aftur til Eyja nokkrum árum seinna, bjó fyrst hjá mági mínum en systir mín var þá í námi í Reykjavík. Svo fór ég að leigja sjálfur og í minningunni var íbúðin nett partýgreni. Ég var held ég týpískur Eyjapeyi, aðhylltist fljótlega sjómennsku og stundaði hana á milli þess sem ég byrjaði í skóla og hætti, því ég fann ekki almennilega hvað ég vildi verða. Ég hafði náð mér í vélstjóramenntun og var svo kominn á það að fara í Stýrimannaskólann en var að glíma við bakmeiðsli svo ég hætti við það. Skráði mig í staðinn í fiskeldisfræði í landbúnaðarháskólanum að Hólum í Hjaltadal og kláraði það nám. Ég var að spá í að taka Sjávarútvegsfræðina í framhaldinu og hóf námið en fékk þá spennandi atvinnutilboð.“

Fjör í fiskeldi

Fiskeldið átti hug Palla næstu árin og var ástæða þess að hann fluttist til Grindavíkur. „Mér bauðst starf hjá Samherja sem hafði hafið fiskeldi úti á Stað nokkrum árum fyrr. Ég þurfti því að flytja til Grindavíkur og sé ekki eftir því, þar er gott að búa og eins og áður sagði, keimlíkt Vestmannaeyjum. Ég kunni strax vel við mig hjá Samherja, fékk þarna gott tækifæri og mikla reynslu, við vorum mest í laxi í byrjun en færðum okkur svo yfir í bleikjuna. Ég var í þessu í fjögur ár en vildi þá breyta til, fannst ég vera kominn á endastöð í svona fiskeldi og réð mig í kynbótaeldisstöð í þorskeldi, var stöðvarstjóri hjá Icecod. Var önnur fjögur ár þar og sótti svo um hjá norska stórfyrirtækinu Stolt en þeir voru á þeim tíma byrjaðir í hönnun á stóru fiskeldi á Reykjanesinu. Ráðningarferlið var langt og strangt, tók níu mánuði með fjórum atvinnuviðtölum og á endanum fékk ég starfið. Það var mjög skemmtilegt, ég tók þátt í hönnuninni á stöðinni, fór í starfsnám til Frakklands og Spánar en sú fisktegund sem við vorum mest að vinna með hjá Stolt var Sólflúra sem er flatfiskur. Tíminn hjá Stolt var mjög lærdómsríkur en þetta er stórt alþjóðlegt fyrirtæki og mjög mikill agi yfir öllu. Ég sá bara um mína deild en hér á Íslandi er framkvæmdastjórinn allt að því farinn að skúra, allir að vasast í öllu má segja. Ég held að íslenskt atvinnulíf megi alveg taka sér svona vinnubrögð til fyrirmyndar. Önnur fjögur ár fóru í þennan kafla míns lífs en nýir tímar og ný tækifæri komu,“ segir Palli.

Public deli
Public deli

Okkar maður fór úr fiskeldinu í fasteignasölu og kann vel við sig þar.

„Ég réð mig fyrst sem verkstjóra hjá Vísi í Grindavík en fann fljótlega að fiskikaflanum í mínu lífi var lokið en ég hafði stofnað Allt fasteignir með pabba árið 2009. Hann rak söluna fyrstu árin og ég var á kantinum en á þessum tímapunkti þegar ég vildi skipta um starfsvettvang og pabbi að verða kominn á eftirlaunaaldurinn, lét ég slag standa og dreif mig strax í löggildinguna. Við höfðum opnað útibú í Grindavík árið 2014, fengum Dagbjart Willardsson til að stýra því og það gekk mjög vel. Ég ákvað að leyfa honum að sjá um það og vildi opna annað útibú í Keflavík. Það tók smá tíma að finna húsnæði og við Hafnargötu 91 í Reykjanesbæ höfum við verið allar götur síðan 2017. Erum eiginlega búin að sprengja húsnæðið utan af okkur en hér líður okkur vel. Fasteignasalan á landsbyggðinni er þannig að fólk vill kíkja í kaffi og spjalla en hvort hún muni breytast í framtíðinni vegna meiri rafræningar skal ósagt látið en það kæmi mér ekki á óvart. Ég var viss um að Reykjanesbær væri spennandi kostur og sá hér fullt af tækifærum. Við ákváðum strax að fara öðruvísi leið en hafði tíðkast en við sýnum sjálf allar eignir. Hér áður fyrr var hringt í eigandann og honum sagt að það væri fólk að koma að skoða. Auðvitað var þetta erfitt í byrjun þar sem ég þekkti engan og man eftir að hafa tekið rúnt í tvo tíma um Reykjanesbæ með Ólafi Arnarssyni vini mínum úr Garðinum sama dag og ég opnaði, til að kynnast staðháttum. Ég þekkti ekkert til, hvorki í Keflavíkurhluta Reykjanesbæjar né Njarðvík en starf fasteignasalans snýst mjög mikið um tengsl, það tók tíma að mynda þetta tengslanet en það hefur komið hægt og örugglega. Ég kappkosta að sinna mínum kúnnum mjög vel og ef kúnninn er ánægður þá eru meiri líkur á að hann mæli með mér. Ég hef verið heppinn með starfsfólk og það eina sem ég bið þau um, að þau sinni kúnnanum mjög vel,“ segir Palli.

Lokað í Hafnarfirði, opnað í Mosfellsbæ

Þegar Palli keypti pabba sinn út árið 2018 ákvað hann að loka útibúinu í Hafnarfirði og opnaði svo nýtt útibú í Mosfellsbæ árið 2021. „Það eru margar fasteignasölur á höfuðborgarsvæðinu og eftir að vel hafði gengið í Reykjanesbæ, ákvað ég að loka útibúinu í Hafnarfirði og opna í Mosfellsbæ, er var samt með litla skrifstofu í Ármúla. Ástæða þess að ég vildi opna í Mosfellsbæ er einföld, þetta er ennþá bæjarfélag þótt sumir líti á þetta sem úthverfi höfuðborgarsvæðisins. Þarna er þessi bæjarfélagastemning eins og í Reykjanesbæ, okkur hefur gengið mjög vel í Mósó. Vissulega langt á milli starfsstöðva en ég næ að samnýta ýmislegt, skjalagerðardeildin er þar en svo er fasteignasalan meira og meira að færast yfir í rafrænt, í dag kvittarðu undir rafrænt og þarft ekki að mæta á skrifstofuna og þá skiptir engu máli hvar starfsfólkið er að vinna. Á höfuðborgarsvæðinu er kúnninn nánast hættur að mæta á fasteignasöluna, ég vil halda áfram í þennan bæjarbrag, að geta tekið spjallið við kúnnann, nándin við kúnnann er mikilvæg að mínu mati.“

Veisla rétt fyrir heimsfaraldur

Fasteignamarkaðurinn fór á flug árið 2019 og var um hálfgerða veislu að ræða hjá fasteignasölum, allt seldist og það fljótt. „Markaðurinn tók mikinn kipp árið 2019 en þá voru stýrivextir lágir og bankarnir fóru meira að bjóða upp á óverðtryggð lán. Það var mjög mikið að gera það ár en svo hægðist á öllu þegar COVID-ið skall á og sérstaklega fóru Suðurnesin illa út úr því þar sem atvinnuleysið var hvergi meira en þar. Keflavíkurflugvöllur er risastór vinnustaður og margir lentu í atvinnuleysi og eðlilega er fólk ekki í fjárfestingarhugleiðingum þá. Fasteignamarkaðurinn hér fór í hálfgert frost, sérstaklega voru einbýlishúsin í kuldanum en segja má að þau séu hægt og bítandi að þiðna. Um leið og COVID fór að linast þá einhvern veginn fór allt af stað aftur. Flugfélögin byrjuðu að fljúga, túristinn fór að mæta, bjartsýni landans jókst og þar með tók fasteignamarkaðurinn á Suðurnesjunum við sér. Hækkunin á húsnæðisverði var samt öfug má segja en venjulega byrja litlu eignirnar að hækka, svo miðlungseignirnar og að lokum einbýlishúsin en þau tóku fyrst kippinn á þessum tíma. Þau áttu hann inni síðan á COVID-tímanum. Hækkunin kom svo í verðminni eignirnar og um tíma var þetta hálf lygilegt, ég gaf upp verð en viku seinna var það búið að hækka um milljón! Á þessum tíma hafði fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu verið búið að hækka mikið og fólk þar sá sér tækifæri á að geta selt litlu íbúðina í blokkinni og keypt sér flott einbýlishús í bæ ekki svo langt frá höfuðborginni. Ég er sannfærður um að þetta muni bara aukast á næstunni og því verði fasteignamarkaðurinn hér á Suðurnesjunum áfram blómlegur,“ segir Palli.

Blikur á lofti með hækkandi stýrivöxtum

Síðasta sumar var gerð töluverð breyting á fasteignamarkaðnum þegar Seðlabankinn setti takmarkanir á lánveitingu þar sem fyrstu kaupendur fóru úr 90% fjármögnun niður í 85% og aðrir aðilar fóru úr 85% niður í 80%. Palli er ekki sáttur við allar þessar breytingar.  „Ásamt þessu var hert til muna hvað hlutfall ráðstöfunartekna fyrir lántöku skuli vera og þetta hefur haft mikil áhrif, sérstaklega fyrir dýrari eignir. Fyrstu kaupendur fóru af markaðnum í stórum stíl þar sem uppá vantaði 5%, að mínu mati var þetta ekki góð aðgerð fyrir íbúðakaupendur og hefði ég viljað sjá lánshlutfallið óbreytt þó svo að viðmið við greiðslugetu væri breytt. Einnig hefði ég frekar vilja sjá á móti að aðilar gætu bara verið með fasteignalán á einni eign, það hefði líka hjálpað til þannig að það væru ekki aðilar i fjárfestingum að keppast við fyrstu kaupendur. Einnig var sárt að sjá með þessum breytingum að það var töluvert af aðilum sem voru að ná upp fjármagni eftir að hafa lent illa í bankahruninu og þau voru að kaupa eignir en þessar aðgerðir slóu þau niður. Stanslausar stýrivaxtahækkanir hafa síðan gert fólk hrætt og aukið gríðalega á greiðslubyrðina hjá þeim sem völdu eða vildu velja óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum. Almenna reglan er að Íslendingar gleyma á tveim vikum en það hefur ekki verið. Markaðurinn hefur hins vegar verið nokkuð góður frá því seint í haust og fínar sölur farið fram, sérstaklega á Suðurnesjum og fólk er að leita frá höfuðborgarsvæðinu. Atvinnulífið á Suðurnesjum er orðið nokkuð sterkt og með þessari fjölgun á ferðamönnum er bara bjartsýni á svæðinu. Ég minntist á óverðtryggðu lánin en eðlilega hækka þau þegar stýrivextir hækka en að mínu mati eru þau margfalt vitulegri en verðtryggðu lánin. Verðtryggð lán eru að mínu mati glapræði og hrein eignaupptaka. Eigið fé brennur upp og ef við setjum dæmið upp þannig að aðili sem tók 90% lán fyrir ári síðan og húsnæðisverðið hefur lítið hækkað, eignin getur orðið 10% yfirveðsett í þeirri verðbólgu sem er í dag að ári liðnu. Þetta er agalegt fyrir ungar fjölskyldur sem þurfa að stækka við sig þegar fjölskyldumeðlimum fjölgar. Því hvet ég alla mína kaupendur til að spá mjög vel í þessi mál áður en skrifað er undir.“

Breytingar á fasteignasöluferlinu?

Palli myndi vilja sjá allt ferlið við að kaupa fasteigna, vera rólegra og yfirvegaðra. „Mér hefur oft þótt vera allt of mikill asi á öllu í kringum fasteignaviðskipti, eign er varla komin á sölu áður en búið er að ganga frá sölu á henni. Kaupandinn skoðaði varla eignina og getur lítið sem ekkert gert ef upp koma gallar. Ég myndi vilja sjá lögin okkar breytast varðandi þessi mál, t.d. að óháður fagaðli taki eignina út. Ég er ekki byggingarverkfræðingur og þó svo að ég sé búinn að læra ansi mikið á þessum árum þá er ég ekki fagaðili þegar kemur að þessum málum. Ein hugmyndin er að það þurfi einfaldlega að halda úti viðhaldsbók um fasteignina eins og við þekkjum þegar kemur að bílnum okkar sem er með smurbók. Ég hvet alla mína viðskiptavini til að skoða viðkomandi eign mjög vel því ábyrgðin er nánast öll hans/hennar.

Ég hef áður komið inn á að ferlið er að breytast en í dag þurfa seljandi og kaupandi varla að hittast, ég sýni eignina  og þegar um semst þá geta báðir aðilar kvittað undir rafrænt. Það eru breyttir tímar í þessu og ég tek þeim breytingum með jákvæðni en mun kappkosta áfram að gefa kúnnanum kost á að kíkja til okkar í spjall.

Hvað varðar framtíðina þá hef ég áfram mjög mikla trú á þessu svæði. Fólk mun halda áfram að flykkjast hingað frá höfuðborgarsvæðinu en það er mikil uppbygging á Reykjanesinu í uppsiglingu, fiskeldið mun stækka á næstunni og Ísland mun bara halda áfram að vaxa og dafna sem ferðamannastaður. Þegar fólk vill flytja á ákveðinn stað þá leiðir það til eftirspurnar eftir húsnæði og þegar eftirspurn er fyrir hendi þá hækkar verðið, það er einfalt lögmál sem mun aldrei breytast,“ sagði Palli að lokum.

Palli fyrir framan fasteignasöluna í Reykjanesbæ. VF-mynd/Sigurbjörn
Palli og fjölskylda
Palli og Jenný
Palli á fyrstu dögum Stolt.
Palli lengst til vinstri, að safna í brennu með Týrurum.
Palli í efri röð, næst lengst til hægri með Týrurum, undir stjórn tilvonandi landsliðsþjálfara, Heimis Hallgrímssonar