Mannlíf

Tónlistarnemendur frá Reykjanesbæ á N4
Laugardagur 26. júní 2021 kl. 10:40

Tónlistarnemendur frá Reykjanesbæ á N4

Tónlistarnemar á Reykjanesi, Suðurlandi, Austurlandi og Norðurlandi láta ljós sitt skína í þriðja og síðasta þætti Netnótunnar á N4 sem sýndur verður sunnudagskvöldið 27. júní. Í þáttunum hafa tónlistarskólar landsins opnað dyr sínar og sýnt frá fjölbreyttu starfi sínu. 

Í júní hafa landsmenn getað skyggnst inn í starf tónlistarskóla landsins í sjónvarpsþáttunum Netnótan sem er uppskeruhátíð tónlistarskólanna fyrir árið 2021. Tónlistarskólar landsins sendu inn myndbönd úr skólastarfinu sem N4 hefur fléttað saman í þrjá þætti og flestir tónlistarskólar landsins tóku þátt í verkefninu. 

Skólarnir sem eiga innslög í þriðja og síðasta þættinum sem sýndur verður á sunnudagskvöldið 27. júní eru 12 talsins en einn þeirra er Tónlistarskóli Reykjanesbæjar. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024