Mannlíf

Þrumandi þrettándagleði í Reykjanesbæ
Grýla og Fjóla tröllastelpa. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mánudagur 6. janúar 2020 kl. 10:53

Þrumandi þrettándagleði í Reykjanesbæ

Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna í árlega þrettándagleði í Reykjanesbæ mánudaginn 6. janúar og eiga saman skemmtilega fjölskyldustund með púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum.

Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla

Áður en dagskrá hefst, frá kl. 16:30–17:50, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Blysför að hátíðarsvæði og börn í búningum

Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Foreldrar eru hvattir til að leyfa börnunum að taka virkan þátt í gleðinni með því að klæða sig upp í ýmis gervi, jafnvel púkagervi og auðvitað að taka nýju luktina meðferðis í blysförina. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Brenna, kakó og piparkökur

Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér.

Flugeldasýning Björgunar­sveitarinnar Suðurnes

Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeim er einum lagið.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.