Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Þreyttar á því að rétta upp höndina
Thelma Sif Róbertsdóttir og Hilda Rún Hafsteinsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
fimmtudaginn 9. júní 2022 kl. 13:05

Þreyttar á því að rétta upp höndina

Tvær stelpur í 7.bekk Sandgerðisskóla unnu Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með Hjálparljósinu

Thelma Sif Róbertsdóttir og Hilda Rún Hafsteinsdóttir eru þrettán ára hugmyndasmiðir í 7. bekk Sandgerðisskóla. Þær unnu aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með hugmynd sinni sem ber nafnið Hjálparljósið. Alls voru sendar inn um 500 hugmyndir en aðeins 25 af þeim voru valdar til útfærslu í vinnustofu sem fór fram í Háskólanum í Reykjavík. 

Tilgangur Hjálparljóssins er að stytta biðtíma nemenda eftir aðstoð í kennslustofunni. Þá kveikja nemendur á ljósinu í stað þess að rétta upp hönd. Ljósið byrjar að vera grænt og verður svo gult, síðan rautt og að lokum byrjar það að blikka. Með því getur kennarinn séð hverja vantar aðstoð og hver hefur beðið lengst. 

Hilda og Thelma segja hugmyndina hafa kviknað í kennslustofunni. „Við vorum í tíma og vorum þreyttar á því að rétta upp höndina til að biðja um hjálp,“ segir Hilda og Thelma bætir við: „Kennarinn velur líka stundum að hjálpa einhverjum sem er nýbúinn að rétta upp höndina og maður þarf þá bara að bíða enn þá lengur.“

Public deli
Public deli

Aðspurðar hvers vegna þessu uppfinning sé mikilvæg fyrir þær segir Hilda hikandi og hálf-flissandi: „Mig langar eiginlega ekki að segja þetta, það er eiginlega út af því við erum latar í höndunum.“

Hjálparljósið

Hugmyndaríkir nemendur Sandgerðisskóla

Nýsköpunarkennsla hefur verið stór þáttur af náttúrufræðikennslu miðstigs Sandgerðisskóla í vetur í umsjón Ragnheiðar Ölmu Snæbjörnsdóttur. Ragnheiður segir keppnina hafa vakið áhuga meðal nemenda skólans. „Allir sem vildu senda inn hugmyndir sínar fengu að senda þær inn. Við sendum inn í kringum 50 til 60 hugmyndir í heildina frá okkur,“ bætir hún við. Þetta er annað árið í röð sem nemendur Sandgerðisskóla hljóta aðalverðlaun Nýsköpunarkeppni grunnskólanna en í fyrra vann hugmynd að samanbrjótanlegum hjálmi til verðlauna. „Hugmyndin á bak við hjálminn er að nemendur vita oft ekki hvað þeir eiga að gera við hjálmana sína þegar þeir eru í skólanum því þeir taka svo mikið pláss. Með þessu er hægt að brjóta þá saman og koma fyrir í töskunni,“ segir Ragnheiður. 

Vel staðið að keppninni

Hilda og Thelma sóttu vinnustofu í Háskóla Reykjavíkur þar sem búnar voru til frumgerðir af þeim 25 hugmyndum sem valdar voru til útfærslu. Ragnheiður segir stelpurnar verið vel undirbúnar fyrir vinnustofuna. „Við tókum fund fyrir vinnustofuna og í sameiningu vorum við búnar að negla niður hvernig þær vildu hafa þetta. Þegar þær mættu þá vissu þær alveg hvernig þær vildu að hugmyndin sín myndi líta út. Þær þurftu ekkert hugarflæði til að ákveða eitthvað, það þurfti í rauninni bara að láta hugmyndina verða að veruleika,“ segir hún og bætir við: „Þær voru alveg komnar lengra með þetta, þær voru með hugmynd að appi fyrir kennarann til að geta séð hver var fyrstur að ýta á takkann. Það er aldrei að vita hvort það gæti orðið framhald af Hjálparljósinu.“ 

Thelma og Hilda ásamt Ragnheiði Ölmu Snæbjörnsdóttur, náttúrufræðikennara

Stuðningur kennara skiptir máli

Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri skólans, segir nýsköpun gefa nemendum færi á að sýna styrkleika. „Í þessu fá margir að láta ljós sitt skína, þarna fá nemendur kost á því að sýna styrkleika,“ segir hún. Bylgja segist vera gríðarlega stolt af Hildu og Thelmu, þá segir hún stuðning kennara skipta miklu máli í verkefnum sem þessu. „Ég er mjög ánægð með það að kennararnir taki þetta alla leið. Það skiptir gríðarlegu máli og sömuleiðis að kennararnir sýni nemendum stuðning,“ segir hún. 

Aðspurð hvort Hjálparljósið verði einhvern tímann notað við kennslu í skólanum segir hún: „Það er aldrei að vita, ef þetta fer í framleiðslu þá held ég að okkur beri skylda til þess að styðja það.“