Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Sýnir frá fjölskyldusögu í Duus Safnahúsum
VF-myndir: Sólborg
Fimmtudagur 30. maí 2019 kl. 10:20

Sýnir frá fjölskyldusögu í Duus Safnahúsum

Fjölskyldumynstur, sýning listakonunnar Erlu S. Haraldsdóttur, opnar á föstudaginn næsta klukkan 18 í Listasafni Reykjanesbæjar í Duus Safnahúsum. Sýningin inniheldur ný málverk og lithographíur byggðar á fjölskyldusögu og endurminningum en Erla fann tengingar við myndefnið í abstrakt-mynstrum Ndbele ættbálksins sem hún kynnti sér í vinnustofudvöl í Suður Afríku.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Myndirnar sem Erla S. sýnir eru meðal annars komnar vegna áhuga hennar á að kynnast uppruna sínum, formæðrum og ættkonum. Samtímis því að Erla S. kynnir sér menningararf kvenna í annarri heimsálfu minnir hún á að í dag lifum við í heimsþorpi þar sem ólíkir menningarheimar þurfa að vinna saman í sátt og samlyndi.


Erla S. í óðaönn að undirbúa sýninguna í Duus.

Auk hefðbundinna málverka Erlu S. eru á sýningunni mynstur unnin beint á veggi og hafa nokkrir nemendur úr málaradeild Myndlistaskólans í Reykjavík aðstoðað við gerð þeirra.

Sýningin stendur til 18. ágúst en safnið er opið alla daga frá klukkan 12 til 17.