Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Súrdeigsbakstur og hundaþjálfun í kórónuveirufaraldri í Ástralíu
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 16. maí 2020 kl. 15:38

Súrdeigsbakstur og hundaþjálfun í kórónuveirufaraldri í Ástralíu

Eydís Konráðsdóttir hefur búið í Sydney í Ástralíu síðan 2004 og starfar þar sem heimilislæknir á einkarekinni heilusgæslu.

Eydís Konráðsdóttir býr í Sydney í Ástralíu með manninum sínum, Matthew Dunn og strákunum þeirra, Alexander, þrettán ára, Lúkas, tíu ára og Adam, átta ára. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er hundurinn Sesar. Eydís er heimilislæknir og starfar á einkarekinni heilsugæslu í nágrenni við heimili sitt en Eydís hefur búið í Ástralíu síðan árið 2004.

Hér má lesa viðtalið í Víkurfréttum - smellið hér!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

– Hvernig stóð á því að þú fluttir til útlanda?

„Ég flutti til Ástralíu eftir að við Matt giftum okkur. Á þeim tíma var auðveldara fyrir mig að halda áfram með námið mitt í Ástralíu en fyrir hann að flytja til Íslands.“

– Var erfið ákvörðun að söðla um og flytja í annað land?

„Já, það var það svo sannarlega en líka ákveðið ævintýri að prófa eitthvað nýtt og kynnast nýrri menningu og siðum. Læknar fara gjarnan erlendis í sérnám svo margir vinir mínir fluttu erlendis á svipuðum tíma.“

Saknar fjölskyldu og vina á Íslandi

– Saknarðu einhvers frá Íslandi?

„Þetta er svo langur listi að ég get ekki nefnt allt hér. Ég sakna fjölskyldunnar minnar og vina mjög mikið og finnst ofboðslega erfitt að vera svona langt í burtu frá þeim. Svo er það auðvitað sundlaugin í Keflavík og heitu pottarnir. Við erum yfirleitt mætt í laugina um leið og við komum til landsins. Ég sakna þess líka hvað það er sjaldan vindur hérna, eitthvað sem ég veit að fáir Suðurnesjamenn eru sammála mér um. Ég sakna frelsisins sem börn búa við heima á Íslandi. Sakna þess að fara í berjamó á haustin og vera úti í náttúrunni á löngum sumarkvöldum. Svo sakna ég líka tónlistarinnar heima, sérstaklega söng- og kórastarfsins.“

– Er eitthvað framandi sem hefur komið þér á óvart þar sem þú býrð núna?

„Þó að ég vissi að Ástralía samanstæði af mörgum mismunandi þjóðarbrotum kom það mér á óvart hvað hefðirnar frá öllum þessum móðurlöndum ríkja sterkt. Hér i Sydney búa innflytjendur frá sama landi oft í sama hverfi svo það skapast svæði þar sem ákveðnar hefðir, menning og trúarbrögð ráða ríkjum. Sem heimilislæknir er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa góða þekkingu á öllum þessum mismunandi siðum og venjum því þeir geta haft svo mótandi áhrif á heilsu fólks, bæði líkamlega og andlega.

– Hefurðu alltaf búið á sömu slóðum?

„Já, ég hef alltaf búið í Sydney en í nokkrum mismunandi hverfum.“

– Hverjir eru helstu kostir þess að búa þar sem þú býrð?

„Ég bý í úthverfi Sydney og helstu kostir þess að búa hér er meira rými og nálægð við skóla fyrir strákana okkar. Hér er mikið af trjám og gróðri og æðisleg svæði til útivistar.“

Vinnudagurinn oft langur

– Hvernig er að vera með fjölskyldu og börn þarna?

„Við búum í mjög fjölskylduvænu hverfi og auðvelt fyrir strákana að ganga í skólann á morgnana. Hér er mikið íþrótta- og tónlistarstarf og margt í boði fyrir börn.

Almennt séð þá er Ástralía þó langt á eftir Íslandi þegar kemur að fjölskyldumálum.  Vinnudagurinn er langur og oft þarf annað foreldrið að vera heima til að sinna börnum því leikskólapláss eru svo rándýr.“

– Hvernig er hefðbundinn dagur í lífi þínu?

„Það eru satt best að segja engir tveir dagar eins hjá okkur. Daglegt líf snýst um skóla, vinnu, íþróttir og tónlist og er í raun mjög hefðbundið fjölskyldulíf.“

– Líturðu björtum augum til næstu mánaða?

„Hér er nú að koma vetur sem verður örugglega mjög sérkennilegur í kjölfar COVID-19.  Ég lít þó mjög björtum augum til vorsins.

Nýtt áhugamál

– Hver eru þín áhugamál og hefur ástandið haft áhrif á þau?

„Ástandið hefur satt best að segja haft mjög jákvæð áhrif á mörg af mínum áhugamálum.

Nýjasta áhugamálið mitt er súrdeigsbakstur enda tilvalið að nota tækifærið þegar allir eru heima og baka brauð sem eru alltaf að verða betri og betri.  Eins finnst mér ofboðslega gaman að elda góðan mat og við höfum nýtt tímann til að prófa nýjar og skemmtilega uppskriftir.

Eftir að Sesar bættist í fjölskylduna hef ég fengið áhuga á hundaþjálfun og ástandið hefur verið kjörið tækifæri til að kenna honum eitt og annað þó við eigum enn langt í land í að hann verði fyrirmyndarhundur.

Ég les mikið og hef náð að lesa fjölmargar bækur á þessum tíma.“

– Áttu þér uppáhaldsstað á Íslandi og hver er ástæðan?

„Þingvellir – þetta er svo stórbrotið og fallegt svæði sem hefur verið svo stór hluti af íslenskri sögu í gegnum aldirnar.  Jarðfræðilega og sögulega séð er það alveg einstakt.  Eins verð ég að nefna Fellsströndina þar sem mamma og pabbi eiga bústað.“

Ætluðum á Ólympíuleikana

– Hvað stefnirðu á að gera í sumar?

„Við ætluðum að fara á Ólympíuleikana í Tokyo en þau plön eins og flest annað  hafa breyst. Nú er veturinn að byrja hérna í Ástralíu og satt best að segja erum við að vona að skólastarf fari að hefjast að nýju svo lítið verður um frí á næstunni.“

– Hvernig hefur COVID-19 verið að hafa áhrif þar sem þú býrð?

„Ástralir stöðvuðu flug frá Kína tiltölulega snemma í þessum faraldri og skömmu síðar var landamærunum lokað. Hér ríkti útgöngubann, fólk var hvatt til að vinna að heiman, skólar hafa allir verið með fjarkennslu og á tíma mátti aðeins fara út til að kaupa nauðsynjar eða stunda líkamsrækt. Hagkerfið er í molum en hins vegar hefur tekist vel að stöðva útbreiðslu COVID-19.  Síðastliðin sólarhring [6. maí] hafa einungis fundist tuttugu ný tilfelli af tæplega 34.000 prófum sem lofar góðu.  Það er gert ráð fyrir því að það verði létt á höftunum í næstu viku.“

Heima flestum stundum

– Hvernig hefur tilveran verið hjá þér undanfarnar vikur, hefur margt breyst?

„Já, við höfum verið heima flestum stundum.  Strákarnir hafa ekki farið í skólann síðan í byrjun mars heldur verið í fjarkennslu. Allt íþrótta- og tómstundastarf hefur legið niðri svo við erum búin að vera dugleg að finna eitthvað skemmtilegt að gera hérna heima.  Satt best að segja hefur okkur fundist ágætt að hægja aðeins á okkur og njóta þess að vera saman.

Ég hef farið í vinnuna en mikið sinnt fólkinu með símatímum til að minnka sýkingarhættuna.“

– Að lokum. Hvaða aðferðir ertu að nýta til að eiga í samskiptum við fólk?

„Við notum mikið Messenger og Zoom.“