Mannlíf

Styrkir til bæjarbúa til viðburðahalds á Ljósanótt
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 21. júní 2019 kl. 09:28

Styrkir til bæjarbúa til viðburðahalds á Ljósanótt

Menningarráð Reykjanesbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að veita kr. 500.000 í styrki til íbúa sem hefðu áhuga á að standa fyrir skemmtilegum viðburðum á Ljósanótt. Styrkirnir eru hugsaðir til að efla grasrótarstarf og hvetja íbúa sjálfa til að brydda upp á einhverju skemmtilegu. Þróun í þessa átt hefur farið vaxandi og vill menningarráð með þessum styrkjum ýta undir þróunina Heimatónleikar í gamla bænum eru t.d. dæmi um einstaklega vel heppnað íbúaframtak og sama má segja um tónleikaröðina Með blik í auga og menningardagskrá í Höfnum sem hefur verið áberandi á sunnudegi Ljósanætur undanfarin ár. Hér að neðan er kynning á hugmyndinni og eru íbúar hvattir til að láta slag standa, senda inn umsókn með góðum hugmyndum og muna að hver vegferð hefst á einu skrefi. Því sé um að gera að prófa sig áfram með nýjum hugmyndum.

Bæjarbúar fyrir bæjarbúa: Viðburðir á Ljósanótt

Viltu standa fyrir viðburði, uppákomu, tónleikum, námskeiði, smiðju eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt? Menningarráð Reykjanesbæjar býður einstaklingum eða hópum fimm 100.000 króna styrki fyrir framkvæmd á vel útfærðum og góðum hugmyndum að viðburðum fyrir gesti Ljósanætur. Skilyrði er að verkefnin séu framkvæmd af styrkþegum sjálfum (þ.e. að styrkir séu ekki nýttir til kaupa á utanaðkomandi atriðum) og að þau séu í þágu íbúa og gesta á Ljósanótt. Styrkurinn er hugsaður til að greiða fyrir kostnað við framkvæmd viðburðar og er greiddur eftir að viðburður hefur farið fram.

Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected] fyrir 12. ágúst. Fram þarf að koma:
-Lýsing á fyrirhuguðu verkefni
-Útfærsla á framkvæmd (hvar, hvenær og fyrir hverja verkefnið er hugsað)
-Gróf kostnaðaráætlun
-Upphæð styrkumsóknar

Umsóknarfrestur er til 12. ágúst og liggur úthlutun fyrir þann 19. ágúst.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024