Mannlíf

Stelpurnar vita alveg hvað þær vilja
Margrét Rut Sörensen á fermingardaginn 1995.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 21. mars 2021 kl. 07:41

Stelpurnar vita alveg hvað þær vilja

segir Margrét Rut Sörensen á Hárgreiðslustofunni Priomos hár og dekur í Reykjanesbæ.

„Í dag má allt í fermingargreiðslum. Stelpurnar vita alveg hvað þær vilja og sumar greiða sér meira að segja sjálfar,“ segir Margrét Rut Sörensen á Hárgreiðslustofunni Primos hár og dekur í Reykjanesbæ.

Margrét á góðar minningar frá fermingardeginum en hún fermdist á skírdag 13. apríl 1995 í Hvalsneskirkju á Stafnesi í Sandgerði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Dagurinn byrjaði snemma þar sem ég fór í fermingargreiðslu hjá hárgreiðslukonunni minni, henni Maggý á Nýja Klippóteki. Ég man vel að ég var mjög sátt með greiðsluna mína. Ég man hins vegar ekki mikið eftir athöfninni sjálfri nema hvað ég var stressuð að segja erindið sem ég átti að læra fyrir daginn. Ég skrifaði það inn í sálmabókina mína: „Jesús sagði. Sá getur allt sem trúir.“ Svo loks þegar komið var að mér náði ég rétt að koma því frá mér sem ég átti að segja því þegar presturinn gaf mér oblátu sem mér fannst alls ekki góð, festist hún í gómnum á manni.“

Kræsingar á borðum

Fermingarveislan var haldin heima hjá Margréti og voru miklar kræsingar í boði. „Ég man að mamma, amma og fleiri bökuðu allt nema marsípanfermingarkökuna sem var frá Valgeirsbakaríi og ég fékk í fermingargjöf frá Friðjóni afa og Dæju ömmu ásamt öðru. Ég fékk margt fallegt, m.a. skartgripi, svefnpoka, ljóðabók en aðalgjöfin var frá mömmu og pabba sem voru steríógræjur sem hægt var að spila bæði kassettu og geisladiska. Það þótti flott á þeim tíma. Ekki má gleyma símskeytunum sem maður fékk. Það var enn í gangi á þeim tíma.“

Vita hvað þær vilja

Margrét opnaði nýlega hárgreiðslustofuna Primos hár og dekur og við spurðum hana út í fermingargreiðslurnar.

„Í dag sjáum við létta liði, fléttur, snúninga og náttúrulegt „lúkk“. Þetta fer alveg eftir stúlkunni. Þær vita alveg hvað þær vilja og hafa sína skoðun á hvernig þetta á að vera. Þær fá margar hugmyndir af Instagram eða Pinterest sem er mjög hjálplegt. Árum áður, þegar ég fór í fermingargreiðslu, hafði maður ekki þetta viðmið heldur bara myndaalbúm sem var á stofunum á þeim tíma.

Breytingarnar eru helstar að hægt er að hafa krullurnar misstórar þar sem tækin hafa breyst mikið í bransanum í gegnum árin. Hárskraut er mismunandi og stundum ekki notað. Svo eru dæmi um að stelpurnar séu farnar að gera þetta sjálfar í stað þess að fara á stofu. Þær eru margar mjög klárar í að greiða sér – en auðvitað eru alltaf einhverjar greiðslur á hverju fermingartímabili. Strákarnir fylgja tískustraumnum hverju sinni.“

Margrét Rut Sörensen á fermingardaginn 1995 í kyrtlinum. Til hægri er Eygló Breiðfjörð, tengdamóðir Margrétar á fermingardeginum sínum.

Fermingargreiðslur sem Margrét hefur greitt á síðustu árum.