Mannlíf

Söngvarar búa í sömu götu og halda nýárstónleika árlega
Miðvikudagur 22. desember 2021 kl. 06:15

Söngvarar búa í sömu götu og halda nýárstónleika árlega

Fyrir fjórum árum var Alexandra Chernyshova að spá í því að hafa nýárstónleika í Reykjanesbæ þegar Rúnar Þór Guðmundsson hafði samband við hana, þá tiltölulega nýfluttur aftur frá Noregi. „Ég heiti Rúnar Þór tenórsöngvari og er að flytja í sömu götu og þú býrð í Innri Njarðvík“.

Úr varð að Alexandra bauð honum í kaffi og þar kynntu þau hvort fyrir öðru hvað þau höfðu verið að gera og síðan bauð Rúnar Þór Alexöndru að ef hana vantaði tenórsöngvara í einhver verkefni þá væri hann tilbúinn. „Ég er einmitt að skipuleggja nýárstónleika og vantar tenór,“ sagði þá Alexandra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rúnari Þór leist vel á nýárs-tónleikana og síðan bættist við annar heimamaður, Helgi Hannesson píanóleikari. Undirtektir á fyrstu tónleikunum voru frábærar og úr varð að þríeykið ákvað að halda tónleika árlega eftir þetta í upphafi hvers árs.

Á þessum fjórum tónleikum sem þegar hafa verið haldnir hafa verið áugaverðir gestir á tónleikunum, m.a. japanski fiðluleikarinn Hiroshi Itou, skólakór Stóru-Vogaskóla, stúlknakór Tónlistarskóla Grindavíkur, Steinar Kristinsson trompetleikari og Jóhann Smári Sævarsson bassasöngvari.

Tónleikar í Fitjum í Noregi

Þetta verkefni hefur undið upp á sig en árið 2019 fóru þau Rúnar Þór og Alexandra til Noregs og sungu þar á Gala-tónleikum fyrir fullu húsi gesta í gamla bænum hans Rúnars Þórs.

„Ég gerði svipaða tónleika þar sem ég bjó á Fitjum í Noregi. Árlega tónleika sem voru vel sóttir og eftir að ég flutti heim til Íslands þá hef ég haldið eina tónleika þarna ytra og þá með Alexöndru. Núna bíða næstu tónleikar bara eftir því að Covid klárist svo við getum farið aftur,“ sagði Rúnar Þór.

Tónleikar í sjónvarpi vegna Covid

Síðustu tónleikar voru frábrugðnir þeim fyrri að því leyti að í stað þess að halda tónleika með hefðbundnum hætti var gerð sjónvarpsdagskrá vegna Covid-19 takmarkana og úr varð skemmtileg tónleikadagskrá „Úr kirkjum Suðurnesja“ sem var sýnd í samstarfi við Víkurfréttir á Hringbraut í upphafi árs 2021. Tónleikadagskráin tókst mjög vel og þá sérstaklega nálgunin með að nota fallegar kirkjur Suðurnesja.

Nýárstónleikar í Ytri Njarðvíkurkirkju

Núna er stefnt á nýárstónleika að nýju í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Gestir að þessu sinni verður Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar undir stjórn Karenar Sturlaugsson. Tónleikarnir verða 2. janúar kl. 17:30. Á dagskrá eru þekkt sönglög, aríur og klassískar perlur úr óperum.

„Fólk á von á því að heyra lög sem það kannast við og eiga vel við í upphafi nýs árs. Vel við hæfi að byrja nýtt ár með hátíðlegum hætti og fallegri söngdagskrá. Við hvetjum Suðurnesjabúa til að koma á tónleikana. Við lofum skemmtilegum tónleikum,“ sögðu þau Alexandra og Rúnar Þór að lokum.