Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Sólveig Dagmar sýnir DJÚPIÐ í Saltfisksetrinu
Mánudagur 31. ágúst 2009 kl. 14:16

Sólveig Dagmar sýnir DJÚPIÐ í Saltfisksetrinu


Sólveig Dagmar Þórisdóttir opnaði um helgina yfirlitssýningu sína DJÚPIÐ í Saltfisksetrinu í Grindavík. Þar verða til sýnis nokkur helstu málverk Sólveigar, sem hafa verið unnin undanfarin misseri.  Verkin veita innsýn í hugarheim listamannsins og eru flest unnin með olíu.

Sólveig Dagmar er fædd í Reykjavík árið 1960. Hún stundaði nám í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands og síðan meistaranám í hagnýtri menningarmiðlun við Hugvísindadeild Háskóla Íslands. Sólveig hefur flest sín ár starfað á Íslandi, meðal annars við málun. Málverkið hefur því alltaf verið ofarlega í huga listamannsins.  Í dag starfar Sólveig  m.a. sem myndlistamaður á Korpúlfsstöðum í Reykjavík og er meðlimur í Korpart listhópnum.

Sólveig vakti athygli meðal annars fyrir ljósmynda- og gjörningasýninguna För Hersins, sem sýnd var í Þjóðarbókhlöðuni í byrjun árs 2008.  Þar leitaðist hún við að fá sýningargesti til að tjá sig á fjóra striga, um veru og för hersins á Miðnesheiði. Vakti sýningin mikla athygli landsmanna. Sú sýning  var síðan sett upp í Bíósalnum í Duushúsum í Reykjanesbæ sama ár. Sólveig hefur einnig sýnt í Þjóðminjasafninu í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sólveig setur upp yfirlitssýningu sem sýna hluta af málverkum hennar.  Sýningin stendur til 17. september nk.  Opið er frá 11.00 til 18.00.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024