Mannlíf

Sigríður Þóra tilnefnd til Söguverðlauna Menntamálastofnunar
Sigríður Þóra ásamt Þorgrími Þráinssyni sem hefur verið í samstarfi við Njarðvíkurskóla.
Miðvikudagur 2. júní 2021 kl. 13:16

Sigríður Þóra tilnefnd til Söguverðlauna Menntamálastofnunar

Sagan Soffía frænka eftir Sigríði Þóru Gabríelsdóttur í 5. bekk Njarðvíkurskóla hefur verið tilnefnd til Söguverðlauna Menntamálastofnunar og RÚV 2021 sem veitt verða á verðlaunahátíð í Hörpu 5. júní í beinni útsendingu á RÚV. Sigríður er ein af 20 krökkum á landinu sem er tilnefnd eftir að hún sendi smásöguna sína í keppnina.

Sagan hennar ásamt öðrum tilnefndum sögum munu vera hluti af Risastórum smásögum 2021, rafbók sem gefin verður út í júní af Menntamálastofnun.
Þeir nemendur sem fengu tilnefningu var einnig boðið að taka þátt í meistarabúðum þar sem nemendur fá tækifæri til að taka þátt í ritlistarsmiðjum með fleiri rithöfundum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024