Mannlíf

Sigga Dögg las fyrir Njarðvíkinga
Sólborg Guðbrandsdóttir
Sólborg Guðbrandsdóttir skrifar
miðvikudaginn 11. desember 2019 kl. 14:04

Sigga Dögg las fyrir Njarðvíkinga

Sigga Dögg kynfræðingur heimsótti Njarðvíkurskóla í vikunni. Hún las fyrir 8.-10. bekk upp úr nýjustu bókinni sinni Daði sem er sjálfstætt framhald bókarinnar KynVeru sem kom út 2018.

Sagan um Daða fjallar um ungan dreng sem glímir við ástina, ástarsorg, sjálfsmyndina o.fl. Daði spilar sig svalan fyrir félögunum og stelpunni sem hann er skotinn í en undir yfirborðinu krauma mótsagnakenndar tilfinningar sem Daði reynir að átta sig á og vinna úr. Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar, segir á heimasíðu skólans.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Víkurfréttir ræddu við Siggu Dögg nýlega og hér fylgir það viðal með.

https://www.vf.is/sjonvarp/dadi-glimir-vid-astina-astarsorg-sjalfsmyndina-og-gredduna