Mannlíf

Seldu bleikar herraslaufur í FS
Fimmtudagur 14. nóvember 2019 kl. 13:32

Seldu bleikar herraslaufur í FS

Nemendur í textíldeild við Fjölbrautaskóla Suðurnesja saumuðu bleikar herraslaufur í tilefni af bleika deginum þann 11. október. Slaufurnar voru seldar og rann ágóðinn óskiptur til Ljóssins en Ljósið er stuðningsfélag fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

Það var Anna Sigríður Jónsdóttir starfsmaður hjá Ljósinu sem veitti styrknum viðtöku en hann var 70.000 kr.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024