Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Soroptimistar styrkja Frú Ragnheiði á Suðurnesjum
Svanhildur Eiríksdóttir, formaður klúbbsins, sem færði Jóhönnu Björk Sigurbjörnsdóttur, verkefnastjóra Frú Ragnheiðar á Suðurnesjum styrkinn.
Laugardagur 23. maí 2020 kl. 07:03

Soroptimistar styrkja Frú Ragnheiði á Suðurnesjum

Soroptimistaklúbbur Keflavíkur færði á dögunum Frú Ragnheiði á Suðurnesjum, skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, styrk að upphæð 200.000 króna. Vonir standa til að hægt verði að hefja starfsemina innan skamms en það verður gert um leið og Almannavarnir gefa grænt ljós.

Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri Frú Ragnheiðar á Suðurnesjum, hélt erindi á maífundi Soroptimistaklúbbs Keflavíkur og fræddi systur um verkefnið. Í máli Jóhönnu Bjarkar kom fram að vitað hafi verið um þörfina á Suðurnesjum um nokkurt skeið og að unnið hafi verið að undirbúningi í rúm tvö ár. Jóhanna Björk, sem áður var sjálfboðaliði í Frú Ragnheiði í Reykjavík, og Díana Hilmarsdóttir, forstöðumaður Bjargarinnar - Geðræktarmiðstöðvar Suðurnesja, unnu þarfagreiningu sem samþykkt var af Rauða krossinum. Samkvæmt greiningu er áætlað að hátt í 40 manns þurfi á þjónustunni að halda á Suðurnesjum. Bíllinn mun fara um öll Suðurnes eftir þörfum og verður þjónustan í boði á mánudögum og fimmtudögum kl. 18:30–21:00.

Public deli
Public deli

Markmið skaðminnkunarverkefnisins er að ná til jaðarsettra hópa í samfélaginu, s.s. húsnæðislausra einstaklinga og einstaklinga sem nota vímuefni í æð og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu. Í erindi Jóhönnu Bjarkar kom fram að þjónustan geti verið margs konar, ekki bara nálaskiptaþjónusta sem oftast er rætt um. „Við bjóðum þjónustuþegum okkar einnig upp á mat, drykk og vítamín, ullarfatnað, svefnpoka og tjalddýnur, ásamt sálrænum stuðningi og samtali, skaðaminnkandi leiðbeiningum og fræðslu, allt eftir ósk hvers og eins og þörfum. Við mætum skjólstæðingum okkar alltaf þar sem þeir eru og reynum að tengjast þeim. Við tölum alltaf fallega til þjónustuþega okkar sem oft þurfa að hlusta á mjög niðrandi orð um sig. Mér þykir ótrúlega vænt um þessa einstaklinga.“

Hjúkrunarfræðingur er alltaf á vakt í bíl Frú Ragnheiðar, ásamt sjálfboðaliðum. Þá er læknir á bakvakt. Skaðaminnkunarverkefni (harm reduction) gengur út á að fyrirbyggja skaða og áhættu við notkun fíkniefna í æð en ekki að fyrirbyggja sjálfa notkunina. Sem slíkt er það hluti af mannúðlegri nálgun við vímuefnanotkun og -vanda þar sem viðurkennt er að hluti af samfélaginu notar lögleg og/eða ólögleg vímuefni. Í þeim hópi eru einstaklingar sem ekki geta né vilja hætta notkun vímuefna. Rannsóknir hafa sýnt að skaðaminnkandi inngrip draga úr neikvæðum og hættulegum afleiðingum vímuefnanotkunar.

Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna sem hafa það að markmiði að stuðla að jákvæðri heimsmynd, þar sem samtakamáttur kvenna nær fram því besta sem völ er á. Soropti-mistasystur beita sér m.a. fyrir að veita þjónustu í heimabyggð og vinna að mannréttindum öllum til handa. Verkefni Rauða krossins rímar því vel við markmið Soroptimista og eru systur í Keflavíkurklúbbi stoltar af því að geta lagt þessu þarfa verkefni lið. Það var Svanhildur Eiríksdóttir, formaður klúbbsins, sem færði Jóhönnu Björk styrkinn.