Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Rolf Hausbentner Band & Fríða Dís – Baby It's Love
Mánudagur 15. nóvember 2021 kl. 09:16

Rolf Hausbentner Band & Fríða Dís – Baby It's Love

Baby It‘s Love er nýjasta lagið frá Rolf Hausbentner Band og er unnið í samstarfi við Fríðu Dís. Svalur rokkari um neistann sem blossar upp á milli tveggja einstaklinga sem kom út á streymisveitum föstudaginn 12. nóvember 2021. 

Rolf Hausbentner Band er hljómsveit sem stofnuð var árið 2020. Eftir áralangt hark á ölduhúsum og knæpum heimsins var sköpunargáfan beisluð og vinnur Rolf Hausbentner Band nú að upptökum á fyrstu plötu sinni sem er væntanleg árið 2022. Baby It’s Love er eitt af þeim lögum sem verða á þeirri plötu. 

Public deli
Public deli

Á Baby It’s Love syngja þau Fríða Dís og Hlynur Þór Valsson og um hljóðfæraleik sjá Rolf Hausbentner og gítarleikarinn BB Green ásamt trommuleikaranum Ólafi Ingólfssyni sem jafnframt var í hlutverki upptökumanns. Lagið var svo hljóðblandað af Inga Þór Ingibergssyni. 

Rolf Hausbentner Band spilar rokk og ról fyrir ljúfar sálir. 

Laginu hefur þeger verið dreift til útvarpsstöðva, en líka er hægt að hlusta á það hér: 

https://open.spotify.com/track/1WBKp4YMVzTMRb3k4XSKeF?si=c5c043d76dd24197