Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Rokkveislunni miklu frestað - frumsýnd í lok september!
Þriðjudagur 18. ágúst 2020 kl. 10:38

Rokkveislunni miklu frestað - frumsýnd í lok september!

Hertar sóttvarnarreglur vegna Covid 19 koma í veg fyrir að ekki tekst að halda tónleika á Ljósanæturhelginni. Stefnt er á að frumsýna Rokkveisluna miklu föstudagskvöldið 25. september, ef búið verður að aflétta þeim fjöldatakmörkunum sem nú eru í gildi. Tvær sýningar fylgja svo í kjölfarið laugardaginn 26.september.

Sýningar verða því á eftirfarandi tímum:
Frumsýning: ​​Föstudaginn 25. september kl. 20. (var áður 2. september kl. 20)
Önnur sýning: ​Laugardaginn 26. september kl. 16. (var áður 6. september kl. 16)
Þriðja sýning: ​​Laugardaginn 26. september kl. 20. (var áður 6. september kl. 20)

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við biðjum alla þá sem búnir voru að kaupa miða á áður auglýstar dagsetningar velvirðingar á þeim óþægingum sem þessar breytingar kunna að valda. Þeir sem hafa keypt miða og geta ekki nýtt sér nýja sýningartíma geta að sjálfsögðu fengið endurgreitt. Eru þeir beðnir að hafa samband við Tix.is vegna þess,“ segir í tilkynningu frá tónleikahöldurum.