Mannlíf

Reynum að vera hugmyndarík
Þriðjudagur 5. maí 2020 kl. 07:21

Reynum að vera hugmyndarík

Andri Þór Unnarsson lærir stafræna hönnun í Tækniskólanum ásamt því að starfa sem verktaki samhliða námi. Hann segist vera heppinn að flest sem hann gerir í tengslum við nám og vinnu fer oftast fram í tölvu og því hefur faraldurinn ekki haft of mikil áhrif á hann.

– Hvernig ert þú að upplifa ástandið í kringum COVID-19?

Public deli
Public deli

Frekar furðulegt ástand sem við erum að upplifa, að sama leyti verður maður að passa að halda jákvæðu hugarfari og halda sér í rútínu.

– Hefurðu áhyggjur?

Hef mestar áhyggjur af henni ömmu minni sem er að verða 87 ára í sumar og sömuleiðis fólki sem er í áhættuhópi.

– Hefur þú gert miklar breytingar í daglegu lífi?

Í rauninni er ég að gera svipaða hluti og væri að gera ef faraldurinn væri ekki. Er að halda áfram að gera verkefni í skólanum og verktakaverkefni. Er svo heppinn með það að flest sem ég geri í tenglsum við nám og vinnu fer oftast fram í tölvunni. Dagarnir eru ekki flóknir en góðir. Vakna og segi góðan daginn á „Microsoft Teams“ við kennara og bekkjafélaga. Vinn verkefni dagsins í skólanum. Tek göngutúr, stundum heimaæfingu og enda síðan á því að horfa á Netflix eða spila Call of Duty Warzone.

– Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi þína vinnu eða nám?

Ég er í Tækniskólanum að læra stafræna hönnun, því hefur verið breytt í fjarnám og verður þannig út önnina. Um leið og samkomubannið hófst var ekki gert ráð fyrir því að við myndum hittast aftur. Kennararnir þurftu eina viku í að ná áttum og skipuleggja prógram fyrir framhaldið. Það gengur þokkalega en við erum í hópaverkefni núna sem er síðasta verkefni annarinnar. Það er krefjandi að vinna verkefni í þessum geira í fjarnámi.

Ég starfa sem verktaki með skólanum og það hefur gengið mjög vel þrátt fyrir ástandið. Síðustu mánuði hef ég verið að vinna að Netþjálfun World Class. Hef geta sinnt því alveg 100%. Tökudagarnir eru þannig að það eru fáir á staðnum og höfum við alltaf passað tveggja metra regluna. Eftirvinnslan er síðan bara unnin heima og því hefur það ekkert breyst.

Hinsvegar átti ég að starfa í háloftunum hjá Icelandair í sumar sem flugþjónn. Því miður verður ekki af því þetta sumarið út af faraldrinum. Starfaði við það síðasta sumar og það var frábær reynsla.

– Hefur þú hitt vini eða ættingja í gegnum fjarfundarbúnað?

Notast aðallega við FaceTime til þess að heyra í vinum og einnig fjölskyldumeðlimum.

– Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega?

Um leið og samkomubannið tók gildi.

– Hvað varð til þess?

Að sjá hversu hratt veiran hefur breiðst út, hversu auðvelt er að smitast af henni og hversu hættuleg hún er fyrir fólk í áhættuhópi.

– Hvernig ert þú að fara varlega?

Er mjög mikið heima þessa dagana og hef einnig sett pásu á að hitta vinina. Er í rauninni búinn að vera í kringum sama fólkið síðan sam-komu-bannið tók gildi fyrir utan tökudagana sem ég þarf að skjótast í. Er ekki að fara að fara út á almannafæri að óþörfu og þvæ mér vel um hendurnar.

– Hvernig finnst þér stjórnvöld standa sig í sóttvörnum?

Frábærlega, alveg til fyrirmyndar.

– Finnst þér fólk vera taka tilmælum yfirvalda nógu alvarlega?

Það er mjög misjafnt þar sem maður sér fólk oft setja á samfélagsmiðla vinahittinga, matarboð, bústaðaferðir og fleira.

– Hvað finnst þér mikilvægast á þessum tímum?

Halda ró og fylgjast vel með tilmælum frá sóttvarnalækni. Ekki gleyma að vera svolítið hugmyndarík og finna sér eitthvað skemmtilegt að gera með fjölskyldunni. Passa að halda heilsunni í toppmálum og reyna að gera það besta úr þessu og hægt er.

– Finnst þér að sveitarfélagið þitt gæti gert meira? Hvernig finnst þér sveitarfélagið standa sig í þessum málum?

Því miður þekki ég það ekki nógu vel til þess að tjá mig um það.

– Er samkomubannið að hafa áhrif á þig?

Auðvitað, það hefur áhrif á okkur öll. Það er bara spurning hversu mikil áhrif þetta er að hafa á fólk. Ég hef verið duglegur í að finna mér verkefni og skella mér í göngutúra til að fá frískt loft. Ég tel það vera mjög mikilvægt á þessum tímum þar sem maður hangir mikið inni þessa dagana.

– Hvernig hagar þú innkaupum í dag?

Skreppi einstaka sinnum í búð til þess að grípa nauðsynjavörur.

– Hvað gerir þú ráð fyrir að ástandið muni vara lengi?

Erfitt að segja eins og staðan er núna. Vonandi fer þetta að lagast. Ef ég ætti að tippa á það myndi ég setja á ágúst.

– Þegar faraldurinn er yfirstaðinn, gerir þú ráð fyrir að ferðast innanlands eða utan?

Ef allt er í toppmálum þá myndi ég telja það líklegt að ég myndi ferðast bæði innan- og utanlands þar sem við misstum af utanlandsferð um páskana.

– Er einhver sérstakur viðburður eða dagur sem þú hræðist að verði aflýst?

Það myndi valda mörgum vonbrigðum ef Þjóðhátíð og fleiri stórar útihátíðir myndu falla niður. Maður verður bara að vona það besta.