Mannlíf

Ræddu opinskátt um sjálfsfróun og fullnægingar
Miðvikudagur 3. apríl 2019 kl. 23:02

Ræddu opinskátt um sjálfsfróun og fullnægingar

- Fávitar á Instagram og Sjónvarp Víkurfrétta í beinni á samfélagsmiðlum

Það var heldur betur opinská umræða um sjálfsfróun, fullnægingar og mörk í kynlífi sem þær Sigga Dögg kynfræðingur og Sólborg Guðbrandsdóttir, stofnandi og umsjónamaður „Fávitar“ á Instagram buðu uppá í beinni útsendingu á fésbók Víkurfrétta í kvöld.
 
Sólborg opnaði umræðu á Instagram um fullnægingar og viðbrögðin hafa verið mikil og fjölmargar spurningar borist. Því ákvað Sólborg að fá Siggu Dögg til liðs við sig í útsendingu kvöldsins þar sem þær ræddu málin umbúðalaust og fjölmörgum spurningum frá áhorfendum var svarað.
 
Hér að neðan er tengill á útsendingu kvöldsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024