Mannlíf

Óvæntur hittingur á heilbrigðisstofnun
Aron Örn t.v., Konráð og Valur Þór á fæðingarstofu á HSS í desember 2019. VF-myndir/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 27. desember 2019 kl. 07:08

Óvæntur hittingur á heilbrigðisstofnun

Konráð læknir hitti 15 ára tvíbura sem hann tók á móti í janúar 2004.

„Þið eruð orðnir stórir strákar,“ sagði Konráð Lúðvíksson, fyrrverandi kvensjúkdómalæknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þegar hann hitti tvíburana Val Þór og Aron Örn Hákonarsyni en Konráð tók á móti þeim þegar þeir komu í heiminn í janúar 2004.

Tilefni hittings Konráðs og tvíburanna var mynd af Konráð í aðal viðtali jólablaðs Víkurfrétta í síðustu viku. Á stórri mynd sem Jóhannes Kristjánsson, blaðamaður Víkurfrétta tók, sem fylgdi viðtalinu, hélt Konráð stoltur af öðrum tvíburanum en þá var sá fyrri kominn í heiminn. Sá seinni sem fékk nafnið Valur Þór er á þessari mögnuðu mynd þar sem læknirinn heldur á honum alblóðugum. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mamma drengjanna, Margrét Arnbjörg Valsdóttir er sjálf eineggja tvíburi en strákarnir hennar eru tvíeggja og vægast sagt ekki mjög líkir. Margrét hlær þegar hún rifjar upp þessi stóru tímamót þegar þeir fæddust en þeir voru báðir tíu og hálf mörk. „Það eru sumir sem halda að þeir séu ekki bræður, hvað þá tvíburar. Þeir héldust í hendur með stærð fram eftir aldrei en nú hefur Valur tekið meiri vaxtarkipp,“ segir hún og svarar aðspurð að meðgangan hafi gengið vel en ákveðið hafi verið að taka þá með keisaraskurði vegna þröngrar mjaðmagrindar. „Uppeldið gekk vel. Þeir voru heilsuhraustir og mér fannst þetta einhvern veginn ekkert mál. Ég er sjálf tvíburi og kannski hefur það eitthvað haft að segja.“

Konráð segir að tvíeggja tvíburar eigi oft tvíbura en sjaldgæfara sé að eineggja eigi tvíeggja eins og í þessu tilfelli. Konráð var ánægður með þessa hugmynd að fá að hitta tvíburana og hann spurði þá aðeins út í gang mála og spjallaði við þá. Þeir eru báðir fótboltastrákar og leika með Keflavík í 3. flokki en þeir verða 16 ára í janúar 2020. Aron er varnarmaður en Valur er í framlínu og á kantinum og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki í síðustu viku.

Á þessum árum þegar þessir flottu peyjar komu í heiminn var starfrækt skurðstofa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Nú er öldin önnur og Konráð er líka hættur störfum vegna aldurs. En hugur hans er hjá HSS eins og lesa má í skemmtilegu viðtali í jólablaði Víkurfrétta sem kom út í síðustu viku.

Konráð starfaði í þrjá áratugi hjá HSS og aðspurður segir hann eftir stutta umhugsun að hann hafi komið nálægt fæðingu um fimm þúsund barna. En hvað mörgum tvíburum spyrjum við? „Ætli ég hafi ekki tekið á móti um tuttugu tvíburum. Það var mjög skemmtilegt,“ segir kvensjúkdómalæknirinn fyrrverandi.

Konráð sýnir mömmunni og sonunum lítinn dúkku-dreng svipaðan að stærð og þeir voru við fæðingu.

Korráð með drengjunum og mömmunni fyrir framan HSS.

Konráð með Val í höndunum í janúar 2004.