Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar
Listakonunni Sossu Björnsdóttur voru veitt menningarverðlaun Reykjanesbæjar árið 2018.
Þriðjudagur 1. október 2019 kl. 08:46

Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Reykjanesbæjar

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar árið 2019. Tilnefningar þarf að senda fyrir 12. október á netfangið [email protected] eða í Ráðhúsið, Tjarnargötu 12.

Tilnefna skal einstakling, hóp eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bæjarfélaginu. Rökstuðningur þarf að fylgja tilnefningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024