Mannlíf

Njarðvíkurskóli tók þátt í matarrannsókn 
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 31. október 2019 kl. 09:42

Njarðvíkurskóli tók þátt í matarrannsókn 

Njarðvíkurskóli tók þátt í matarrannsókn á vegum Umhverfisstofnunar. Fyrirtæki og stofnanir voru beðin um að vigta matarúrgang í eina viku og flokka eftir því hvort um var að ræða matarúrgang sem er ónýtanlegur til manneldis (bein og sinar, hrat o.s.frv.) eða mat sem hefði mátt nýta til manneldis. Rannsóknin fór fram í matartíma vikuna 14. til 18. október.

Umhverfisteymi Njarðvíkurskóla sá um að framfylgja rannsókninni og var ákveðið að hafa samkeppni milli árganga um matarsóun. Nemendur settu sinn matarúrgang í fötu merkta sínum árgangi sem var svo vigtaður. Niðurstöður tóku mið af fjölda nemenda í hverjum árgangi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samkeppnin var hörð en voru það nemendur út 6. bekk sem sigruðu í þessari keppni með 20 grömm af úrgangi á hvern nemanda yfir þessa fimm daga sem er frábært! 10. bekkur var skammt undan með 26 grömm á hvern nemanda. Heildarúrgangur nemenda í Njarðvíkurskóla þessa viku var 43,65 kg eða um 100 grömm á nemanda.

„Rannsóknin vakti mikla lukku meðal starfsfólks og nemenda Njarðvíkurskóla,“ segir á heimasíðu skólans.