Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Missti tímaskynið aleinn í heiminum að Fjallabaki
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 2. ágúst 2020 kl. 10:37

Missti tímaskynið aleinn í heiminum að Fjallabaki

Myndavélin og kaffið alltaf með Ellerti Grétarssyni, ljósmyndara sem hefur farið víða í sumar

„Sumarið hefur leikið ákaflega vel við mig. Hef verið mikið á ferðinni um allt land að taka myndir, heimsótt marga fallega og áhugaverða staði og upplifað íslenskrar sumarnætur eins og þær gerast bestar. Þetta verður ekkert betra,“ segir Ellert Grétarsson, ljósmyndari og starfsmaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Hvaða staðir hafa heillað þig?

Public deli
Public deli

„Þeir eru svo margir, staðirnir sem hafa heillað mig í sumar. Ég átti til dæmis alveg himneskt sumarkvöld við sólsetur í Kálfshamarsvík í algjöru logni og kyrrð þar sem ég var eina manneskjan á svæðinu og ekki einu sinni einn bíll uppi á vegi. Ekkert sem truflaði og einu hljóðin voru í fuglunum og öldugjálfrið í fjöruborðinu. Kálfshamarsvík er magnaður staður. Einnig átti ég yndislega einveru að Fjallabaki í byrjun júlí þar sem ég ók ýmsa hliðarslóða af Landmannaleið til að skoða og ljósmynda fornar eldstöðvar. Hitti ekki eina manneskju í tvo daga og var bara aleinn í heiminum. Ekkert stress, ekkert áreiti og maður missir tímaskynið.

Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina?

„Ég hef verið mikið á ferðinni í sumar og nánast ekkert heima hjá mér síðustu vikurnar þannig að um Verslunarmannahelgina ætla ég að vera rólegheitum heima hjá mér. Enda er veðurútlitið heldur ekki gott. Ég er ekki mikið gefinn fyrir mannmergð og mannmót, hef t.d. aldrei farið á Þjóðhátíð og forðast slíka viðburði. Þannig að um Verslunarmannahelgar hef ég annað hvort verið heima hjá mér eða leitað á staði þar sem fáir eru á ferli, t.d. á hálendinu.“

Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin þín?

Eftirminnilegasta Verslunarmannahelgin mín var árið 2012. Þá fór ég í fjögurra daga gönguferð með allt bakinu frá Núpsstaðarskógum yfir Skeiðarárjökull og Skaftafellsfjöllin, alveg niður í Skaftafell í hrikalegu og ólýsanlega fallegu landslagi. Þessi ferð var mikil upplifun.“

Hvað finnst þér mikilvægt að hafa um verslunarmannahelgina?

„Mikilvægastu hlutirnir sem ég tek alltaf með í ferðalög, hvort sem það er Verslunarmannahelgi eða ekki, eru myndavélin, kaffið og prímusinn til að hita vatnið í kaffið.“



Múlagil, skammt frá Fjallsárlóni, er hrikalegt og fallegt.



Margir fallegir eldgígar prýða landslagið á Snæfellsnesi. Hér er horft yfir Rauðkúlu í átt að tveimur öðrum gígum, Grákúlu nær og Kothraunskúlu fjær. Úr þessum gígum rann Berserkjahraunið sem hefur m.a. runnið út í Selvallavatn, eins og sést á myndinni. Í baksýn má svo sjá til Hraunsfjarðar. Myndina tók Ellert með dróna.



Horft yfir hluta Valagjár, gossprungu sem myndaðist stuttu fyrir landnám og tilheyrir eldstöðvarkerfi Heklu, sem sést í bakgrunni.



Ellert er með tjald á toppi bílsins þar sem hann leggur sig á völdum myndatökustöðum meðan hann bíður eftir sólarupprás og réttu birtunni.

Kyrrlátt sumarkvöld í Kálfshamarsvík.