Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Markmiðið að vera besta útgáfan af sjálfri mér
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
mánudaginn 2. janúar 2023 kl. 08:13

Markmiðið að vera besta útgáfan af sjálfri mér

FS-ingur vikunnar

Esther Júlía Gustavsdóttir spilar sem markvörður í fótbolta með Keflavík. Hennar stærsti draumur er að spila með A-landsliði kvenna í framtíðinni og markmið hennar fyrir árið 2023 er að verða besta útgáfan af sjálfri sér. Esther er FS-ingur vikunnar.

Nafn: Esther Júlía Gustavsdóttir

Aldur: 17 ára

Public deli
Public deli

Námsbraut: Íþrótta- og lýðheilsubraut á afreksíþróttalínu

Áhugamál: Fótbolti og ýmis hreyfing eins og að skíða og fara í ræktina

Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Held ég sakni líklegast bara kennaranna.

Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS?
Ég ákvað að fara í FS út af hann var nálægt og það hentaði betur ef ég vildi halda áfram í fótbolta.

Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Félagslífið gæti alveg verið betra en gæti líka verið verra.

Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Elfa Karen Magnúsdóttir verður rosaleg í boltanum.

Hver er fyndnastur í skólanum?
Kamilla Ósk fær titilinn.

Hvað hræðist þú mest? Köngulær eru með því ógeðslegasta sem ég veit um.

Hvað er heitt og hvað er kalt þessa stundina? Það sem mér finnst vera heitt á stundinni er Tene en kalt Ísland, væri alveg til í að vera á Tene ef ég gæti.

Hvaða mánuður er besti mánuðurinn og af hverju? Mér finnst júlí vera bestur, þá er mitt sumar, gott veður og fótboltinn í fullum gangi.

Hvað stendur upp úr árið 2022 hjá þér?
Þegar ég var valin í yngri landslið fyrr á árinu rétt áður en ég brotnaði síðan.

Hvað ætlar þú og fjölskylda þín að gera um áramótin? Við ætlum bara að vera saman og borða góðan mat, horfa á skaupið og sprengja flugelda.

Ertu með einhver nýársheit eða markmið fyrir næsta ár? Ég held að mitt markmið sé bara að vera besta útgáfan af sjálfri mér.

Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Það sem mig langar mest að gera í framtíðinni er að semja sem atvinnumaður í toppliði og vinna í kringum fótbolta/íþróttir af því sem eftir er, þá sem íþróttasálfræðingur, sjúkraþjálfari eða eitthvað slíkt.

Hver er þinn stærsti draumur? Minn stærsti draumur er að spila leik fyrir A-landslið kvenna einhvern tímann í framtíðinni.